Heil og sæl öll,
Núna fer að styttast í jólin og er ég að reyna finna jólagjafir handa öllum, ég var mjög hrifinn af þessum “LED Strips” og fann ágætan pakka á snilldar.is, enn ég er smá smeykur hvernig þau eru að auglýsa þetta, sína ekkert framleiðanda og allt, og er mjög hræddur að ég fæ afhent eitthvað kínverskt drasl, þannig ég vildi heyra hvort að þið séuð með einhverja reynslu af þessari búð?

[Þetta er borðinn sem ég er að skoða](https://www.snilldar.is/products/led-ljos-10m)

9 comments
  1. Ef þú hægri klikkar á efstu myndina og velur google image search, þá kemur ekkert annað en China LED

  2. Ég er svo skeptísk að ég reikna aldrei með neinu öðru en að fáist eingöngu Kína skran í svona no name netverslunun.

  3. Allt þetta LED dót sama hvar þið kaupið það kemur frá Kína , það þarf alls ekki að vera neit slæmt, en í stað þess að kaupa frá svona drop shipping fyrirtæki myndi ég bara panta sjálfur af Aliexpress

  4. Keypti nkl eins á 5$ á ebay. Virkaði í 5 ár no problem en eyðilagðist þegar ég var að fikta í þessu í flutningum. Myndi allan daginn kaupa það aftur frá ebay.

  5. Allt þetta LED sem þú ætlar að kaupa er bara frá Kína, ég segi kaupa ekki það, en kaupir eitthvað frá önnur lönd

Leave a Reply