
Hef verið að fylgja r/antiwork nýlega og finnst margir áhugaverðir póstar þar og fór að velta fyrir mér hvernig staðan er að þessu leiti á Íslandi. Hver er ykkar reynsla? Eruði með einhver dæmi um t.d ólögmætar uppsagnir, slæma yfirmenn, aðstæður sem voru engan vegin í lagi, o.s.fv?
Edit: Var ekki að búast við að þessi þráður fengi svona mikla athygli. Takk fyrir að deila reynslum ykkar með okkur!
Edit 2: [Mannlíf gerði grein um okkur.](https://www.mannlif.is/frettir/innlent/thetta-eru-verstu-vinnustadir-landsins-eg-helt-ad-mer-vaeri-ad-blaeda-ut/)
32 comments
Ekki ég en kærasta mín vann fyrir Sandholt á laugarvegi.
Eigandinn og yfirbakari er algjör rasshaus sem elskar að nýðast á starfsfólki sýnu, aðalega á erlendu starfsmönnum. Borgaði alltaf seint, vel eftir mánaðarmót.
Hér er [póstur](https://www.reddit.com/r/Iceland/comments/mh5tld/hef_aldrei_veri%C3%B0_jafnt_rei%C3%B0ur_%C3%A1_%C3%A6vinni/) sem ég gerði fyrir stuttu þegar kærasta mín gat ekki meir og hætti.
Þvílikar sögur, mun aldrei vinna í veitingabransanum, got it
Vann á bar í miðbænum þar sem eigandinn var (veit ekkert um hann í dag, held að hann eigi staðinn samt enn) oftar en ekki vel kókaður og hagandi sér eins og fífl með allskonar vitleysinga með sér. Á margar sögur þaðan.
Vann hjá póstinum í keflavík fyrir nokkrum árum síðan, í tæpa 3 mánuði. Mjög slæmur vinnukúltúr, yfirmanneskjur voru mjög mislyndar, hvassar og óþolinmóðar við starfsfólk. Ég var búin að vera þarna í tvo mánuði þegar amma mín veikist mjög skyndilega, og var ekki hugað líf. Ég lét yfirmanneskjuna vita að ég gæti þurft að stökkva frá vinnu með litlum fyrirvara, og það var samþykkt með herkjum. Svo fæ ég símtalið frá mömmu í lok dags nokkrum dögum seinna, amma er að fara þú verður að koma og kveðja. Það voru tæpir tveir tímar eftir af deginum og èg lét vita að ég væri að fara, fékk mjög hryssingslegt “jæja ætli það ekki, en það er eins gott að þú mætir í fyrramálið”. Ég var gjörsamlega agndofa, en sagði ekkert og fór. Fékk svo blessunarlega boð í aðra vinnu strax vikunni eftir og sagði upp með det samme. Mér var þá tjáð að það væri mánaðar uppsagnarfrestur og ég þyrfti að vinna það út. En það stóð mjög skýrt í samningnum mínum að ef starfsmaður hefur unnið í minna en 3 mánuði er uppsagnarfrestur 1 vika, og ég hafði unnið í 2 og hálfan mánuð á þessum tímapunkti, þannig að ég vann bara út vikuna og hætti svo að mæta, og benti yfirmanninum mínum á samniginn þegar hún hringdi brjáluð næstu viku á eftir. Þannig að helvítis beljan frysti launin mín og neitaði að borga. Ég þurfti að fara í stéttarfélagið, hóta málsókn og mæta eins og þrumuský niður á aðalskrifstofuna hjá póstinum til að fá launin mín loksins.
[deleted]
Vann af mér raskatið á lager hjá stórri byggingarvöru verslun.
– var “aðstoðar verkstjóri” og gegndi öllum störfum sem fylgdi því, en fékk ekki titilinn þar sem “yfirmenn á vörustjórnunar sviði fá ekki greidda yfirvinnu og þú vinnur svo mikla yfirvinnu að við viljum ekki taka það af þér”
– tók heilann mánuð þar sem ég vann 14 tíma vinnudag 7 daga vikunar sum sumur, og það endaði með því að forstjóri fyrirtækisins hringdi í verkstjórann út af laununum mínum og hvort ég hafi í raun og veru unnið svona marga tíma(þetta skeði þrju sumur í röð).
– Lennti í vinnuslysi og rústaði ökklanum á mér, var kominn aftur í vinnu tveim vikum áður en ég átti að fara aftur samkvæmt lækni þar sem verkstjórinn var farinn að hringja í mig og byðja mig að mæta það væri svo mikið að gera(það var alltaf mikið að gera, alla daga ársins, það var stundum rólegt síðasta daginn í mánuðunum áður en fyrirtæki þurftu að borga VSK)
– Kom fyrir að starffólk var oft veikt, lennti einu sinni í því að við vorum þrír af 9 starfsmönnum í vinnu, um hásumar, brjálað að gera, einn af hinum þrem var sumarstarfsmaður með viku reynslu, hinn var Rússi sem sá bara um að móttaka efni og staðsetja á lagernum, reyndi að nota hann í afgreiðslu sem gekk ekki vel. Sem betur fer var sumarstarfsmaðurinn bróðir minn og þess vegna auðvelt að tala við hann, og tveir af reglulegu vörubílstjórunum vissu hvernig kerfið virkaði og gátu afgreitt sjálfa sig.
– Mér var neitað um launahækkun út að “ef þú færð launahækkun ertu kominn svo nálægt laununum hjá [nafn verkstjóra], og hann fær ekki greidda yfirvinnu eins og þú. Verkstjórinn var búinn að vinna hjá fyrirtækinu í 35 ár og hafði aldrei beðið um launahækkun.
– Við vorum alltaf undirmannaðir og sölumennirnir voru alltaf brjálaðir yfir því hvað summt tók langan tíma. Einnig áttu sölumenn það til að hringja á lagerinn og spyrja “hey það er bara eitt búnt af þessu til í kerfinu, er það ekki örugglega til”, við fórum að athuga og oft var það ekki til, sem leiddi til þess að sölumaðurinn seldi það samt og viðskiptavinurinn kom til okkar, sagðist verða sækja efnið sem við vorum að staðfesta að væri ekki til, og varð svo brjálæður út í okkur út að það var ekki til.
– Ég sótti um launahækkun rétt fyrir jól þegar kjarasamningar voru í gangi og fékk svarið “Það eru kjarasamningsviðræður í gangi, þú færð hækkun í gegnum það” (Þetta er umorðað hjá mér en þetta er það sem yfirmaðurinn var að ýja að), gaf sjálfum mér uppsagnarbréf í jólagjöf það árið.
– Síðustu vikuna mína var safnað verkefnum á mig, ég var með 5 verkefni á mér þegar ég tók eftir að flestir hinir voru að slaka á þar sem einu sinni var rólegur dagur, talaði við verkstjórann hvort þeir gætu ekki tekið eitthvað af mínum verkefnum, og fékk svarið að engum þeirra væri treystandi í að leysa þessi verkefni, ég bennti verkstjóranum á að ég yrði ekki þarna í næstu viku og spurði hvað hann ætlaði að gera í þessum verkefnum þegar þau kæmu þá, fékk ekkert svar, skildi miðana eftir fyrir nokkur verkefni á borðinu og sagði honum að ég myndi ekki gera þessi nokkur verkefni.
– Fékk strax svipað starf, byrjaði með 100þ kr aukalega í laun og var bætt 50þ ofan á það eftir mánuð af vinnu þar.
– Endaði á að missa þá vinnu þar sem ég var kominn í algera kulnun út frá hinu starfinu, er ennþá að vinna í þeirri kulnun, en er allavega kominn í nám að læra eitthvað sem ég hef áhuga á.
– Vann í stórkaup rétt eftir hrun, var tekið fram þegar ég var ráðinn að ég fengi enga yfirvinnu greidda, var settur einn yfir grænmetis og mjólkurkælinn, grænmetiskælirinn tók allan starfsdaginn hjá mér, var annar starfsmaður sem sá um mjólkur kælinn meðan ég var að læra starfið. Hvern einasta dag kom yfirmaðurinn að mér sirka korter fyrir lokun og ætlaðist til að ég myndi klára ákveðin verk áður en ég færi, sirka 2 tímar af vinnu, ég sagði alltaf nei ég fæ ekki borgað fyrir yfirvinnu. Var rekinn fyrir að vera ekki að ná að vinna báða kælana jafn hratt og sá sem sá um starfið á undan mér. fékk viku í uppsagnarfrest þar sem ég var bara búinn að vinna þarna í þrjár vikur. Talaði við samstarfsmenn um þetta og lærði það að sá sem sá um báða kælana á undan mér var ekki ein manneskja, heldur voru tvær manneskjur með sitthvorn kælinn.
Gæti örugglega haldið áfram, en held að þetta sé nóg
Sheesh, allar þessar sögur eru hver um sig efni í Kveik þátt, hvað þá saman.
Ekki ég heldur vinur minn. Hann fótbrotnaði og skilaði læknisvottorði í vinnuna til að staðfesta að hann væri óvinnuhæfur í einhvern tíma. Stjórinn hanns neitaði að heiðra jafnvel það minnsta veikindaleifi svo hann hringdi í VR. Kom stuttu seinna í ljós að sami yfirmaður hafi sett hann á næturvakt með jafnaðarlaun. Endaði með ákæru um launasvik.
Er ekki málið að stofna bara Antiwork_Iceland?
Ég er nýbyrjuð að vinna á Icelandair hotels. Fyrst líkaði mér mjög vel, og yfirmaðurinn var mjög skemmtilegur, fyndinn og vinalegur. Nema, hann kenndi mér ekki að skrá mig inn í kerfið fyrsta heila mánuðinn, og hálfa þar á eftir… Hann sagði mér bara að hann myndi “skrá” niður allar vaktirnar, og ég trúði því eins og kjáni.
Mig langaði að standa mig vel í vinnuni og ég lagði mig alla fram, hann hringdi í mig á nánast hverjum degi á aukavaktir og til að hjálpa til í herbergisþrifum, þar sem það var mjög mikið að gera á hótelinu.
En svo fæ ég ekkert útborgað eftir fyrsta mánuðinn, ekki neitt.
Ég tala við hann yfirmanninn, og hann útskýrir að þetta hitti bara svona á tímana, að ég mun fá tvöfallt útborgað næsta mánuðinn. Ég trúði því.
Síðan þegar næstu mánaðarmót koma, þá fæ ég HUNDRAÐ ÞÚSUND útborgað fyrir 2 mánuði, og allar aukavaktirnar!!!
Ég get ekki sannað að þau svindluðu á mér, þar sem ég skráði ekki sjálf niður tímana mína, en ég veit að ég hefði átt að fá miklu miklu meira útborgað. Ég hef ekki fengið neitt útborgað fyrir allar aukavaktirnar mínar og allar vaktirnar sem hann “skráði” niður…
Ég tala við yfirmanninn, og hann segist ætla að kíkja á þetta með launin. Nema hann hættir síðan, hann sagði engum frá að hann væri að hætta, og hann blokkaði númerið mitt.
Nú er nýr yfirmaður byrjaður. Ég talaði við hana um þetta en hún er ekki búin að gera neitt í þessu, né minnast eitthvað meira á þetta.
Mér líður eins og algjörum asna fyrir að hafa látið fara svona með mig, og veit ekki hvort ég geti gert eitt né neitt í þessu. En þau blekktu mig til að vinna meira en mánuð launalaust og taka allar aukavaktirnar frítt.
Ég vill endilega að þessir þræðir haldi áfram. Djöfull hafa margir lent í skítafólki hér á landi(þar á meðal ég).
Það ætti að vera svona þráður í hverjum mánuði.
Edit: Takk fyrir að pinna þennan þráð.
Hlær í Hard Rock café þegar það opnaði 2017 var einn af fyrstu starfsmönnunum í Línu eldhúsinu og get staðfest það að vinna þar er ein af ástæðum hví ég er óvinnufær í dag
Get allavegana sagt ykkur að Hrefna Sætran gerir ekkert í kynferðisofbeldi á vinnustað 🤌
Vann hjá Centerhotels Plaza sem næturvörður og hér eru 2 sögur um það
1. Stundum þurftum við að leysa af hjá hinum centerhotels stöðunum. Eitt kvöldið mæti ég til vinnu og þá er annars afleysingi þar sem ég átti að vera og við héldum bara að hann væri í þjálfun. Við vorum búnir að vera inna í 2 tíma þegar starfsmaður á öðru CH hóteli hringir í okkur og spyr hvort það sé ekki einhver að koma að leysa hann af. Ég hringi í vaktsíma hótelstjórana og fæ þar að vita að ég átti að fara leysa þennan starfsmann af en hann lét mig aldrei vita (Hann talar við mig með mikilli óvirðingu, eins og þetta allt sé mér að kenna). Ég segi ekkert mál, skelli á og dríf mig til að leysa greyið starfsmanninn af. Hótelstjórinn hringir svo í mig um klukkutíma síðar og byrjar símtalið með því að öskra á mig því ég ætti ALDREI að vera með svona óvirðingu til yfirmanns. Óvirðingin var semsagt að skella á hann. Ég segi við hann að ég hafi ekki verið með neina óvirðingu og hann vill víst meina að ég hafi ekki átt að gera það. Ég læt hann vita að ég myndi koma fram við hann eins og hann kemur fram við mig. Hann ape-shittar yfir mig í góða 2-3 mín áður en ég segi við hann að ég læt ekki tala svona við mig og skelli á hann. Hann hringir aftur 2-3 sinnum í mig og ég skelli aftur á hann því ég læt ekki koma svona fram við mig. Nóttin líður og ég er að fara enda vaktina þá kemur hótelstjórinn minn (ekki sá sami og í símanum) og segir mér upp og ástæðan fyrir því var að ég hafi verið með óvirðingu við hótelstjóran þar sem óvirðing er alls ekki liðin í fyrirtækinu….
2. Ég lenti einu sinni í því að þurfa vinna á Plaza einn á næturvakt um helgi því hinn sem var með mér var veikur og það gat engin komið auka. Það var brjálað að gera og ég var á 200% allt kvöldið og nóttina. Það kemur maður inn sem er greinilega í annarlegu ástandi og biður um bjór en við vorum búnir að loka barnum þannig ég læt hann vita að það sé ekki hægt. Hann kemur óhugnalega nálægt áfengiskælinum þannig ég labba “fyrir” hann þannig hann geti ekki stolið neinu. Hann endar með því að reyna taka eina whiskey flösku og ég labba fyrir það þannig hann reynir aftur og ég greip óvart í hann og í kjölfarið var ég bitinn af þessum manni í hendina og fékk smá skurð. Hann grípur í flöskuna og hendir niður nokkrum öðrum flöskum niður og þær brotna. Maðurinn hleypir út og ég hringi beint á lögguna og svo á hótelstjórann. Það fyrsta sem hótelstjórinn spyr mig þegar ég er búinn að láta hana vita hvað gerðist er ekki hvort það sé í lagi með mig eða hvort hún ætti að koma að leysa mig af HELDUR hvort ég gæti ekki skrifað niður hvað brotnaði og/eða var stolið. Hún bauðst ekki til að koma leysa mig af eða hvort ég vildi ekki fara uppá sjúkrahús til að skoða bitið.
Þetta eru bara tvær sögur af mörgum sem gerðust þegar ég var að vinna hjá þessu fyrirtæki.
Eftir að mér var sagt upp þá var boðið mér að hætta og ekki fá borgaða 3 mánuðina eða vinna út uppsagnarfrestin. Ég ákvað að vinna út uppsagnarfrestin en ég ákvað að gera BARA það sem ég þurfti að gera samkvæmt samning.
Ákveðnir yfirmenn og eigendur hjá Keahotels sem stunda ógnarstjórnun, öskur og hótanir, og kynferðislega áreitni. Ógeðslega toxic vinnustaður.
Bara þetta klassíska veitingabransadæmi þar sem eigendur notfæra sér ungt fólk sem veit ekki réttindi sín eða virði.
Vann á ónefndum veitingastað á Akureyri. Þegar ég sótti um vinnu tók ég það fram að ég væri að fara erlendis x.-x. dag og þyrfti að fá frí þá daga ef ég yrði ráðin. Vinnuveitandinn sagði sjálfsagt mál og ég var ráðin í uppvask.
Tók 3 vaktir, fékk hvorki pissupásu né matarhlé, átti bara að vinna alla vaktina. Var svo sett á vakt kvöldið áður en ég átti flug út, ég nota bene sagði í upphafi að ég þyrftiað fá frí þennan dag líka, þurfti að vera mætt á keflavíkurflugvöll 3 um nóttina og á vakt til miðnættis. Hann harðneitaði að færa mig um vakt og ég var nýbyrjuð svo að ég þekkti engan sem ég gat beðið um að skipta við mig um vakt. Endaði með því að ég hætti eftir 3 vaktir, ætlaði ekki að fórna þessari útlandaferð fyrir skítavinnu á skítalaunum.
Var svo að vinna hjá netfyrirtæki að setja upp routera og þjónusta þá, sem sumarstarfsmaður. Þegar ég hætti eftir sumarið fékk ég mjög harðorðaðan og skrautlegan póst frá vinnuveitendanum mínum þar sem ég lét hana ekki vita hvenær ég ætlaði að hætta, heldur bara yfirmanninn minn. Ég sagði við hana að ég hefði látið yfirmanninn vita og hann minntist ekki á að ég þyrfti að láta hana vita. Hún sagði að ég hefði átt að vita betur, skipaði mér að hætta og sagði að ég þyrfti að læra að vera formlegri. Svo hélt hún áfram að hella sér yfir mig um hversu dónaleg ég væri. Ég hætti bara að svara henni, núna vara ég alla sem ég þekki við að vinna fyrir hana. Hún er víst þekkt fyrir einmitt þetta.
Vann hjá blómaheildsölu frá 15-18 ára, borgaði mér alltaf lágmarkslaun miðað við aldur.
Fékk aldrei yfirvinnu greidda þó ég vann oft 10-12 tíma á dag. Var oft að skila 220 tímum á mánuði. Svo voru öll stimpilkort tætt í enda mánuðs (eflaust til að fela sporin sín).
Þegar ég spurði hann úti þetta (eftir að VR kom í heimsókn í skólann okkar) sagði hann það væri afþví annar starfsmaður fær ekki greidda yfirvinnu (sá starfsmaður vann bara frá 8-16). Bað einu sinni um launahækkun og fékk það í gegn en þá var ég búinn að vera á lágmarkslaunum í 3mánuði miðað við 16 ára aldur og hann hækkaði launin mín í lágmarkslaun miðað við 17 ára aldur eftir að vera búinn að vera 17 í 3 mánuði.
Um leið og ég fékk bílpróf lét hann mig í að keyra út blóm. Varð brjálaður út í mig þegar ég klessti 1 bíl (sem var btw eld gamall og handónýtur) svo þegar ég klessti annan bíl sagði ég honum ekkert frá því. Setti líka bensín óvart einu sinni á diesel bíl, sá bíll endaði illa. Sagði honum aldrei frá því heldur.
Var einu sinni að þjálfa nýjan starfsmann, hún spurði mig hvernig væri að vinna þarna ég sagði leiðinlegt og léleg laun. Hún hætti stuttu seinna hahaha, hann var náttla brjálaður út í mig fyrir það.
Svo núna fyrir stuttu síðan sá ég hann var dæmdur fyrir tollsvik á blómum! (6mkr sekt) Var mjög gaman að sjá það haha. Kom mér líka ekkert að óvart miðað við hvað hann borgaði mér ekki nálægt því sem ég átti rétt á.
Svo var ein manneskja sem stóð upp fyrir mig þegar hann var að vera með derring og það var dóttir hans. Merkilegt að segja hún er líka mikill réttlætissinni þannig það kom mikið að óvart því hann nýtti sér svo mikið óréttlæti gagnvart öllum starfsmönnum.
Svo grunar mig að hann hafi sagt við 1 starfsmann að ég væri eitthvað hrifinn af henni því hún reyndi svo að bjóða mér á stefnumót sem ég sagði nei við. Hann hló svo mjög mikið af því og gerði mikið grín af henni og atast í mér útaf því. Það var virkilega óþæginlegt.
Eftir þetta hef ég verið með launa og stéttarfélags réttindinda ptsd því ég kíkji reglulega á réttindi mín og rétt laun. Hika líka ekki við að nýta mér það.
Var að vinna á veitingastað í Kópavogi og var með alveg ferlegan yfirmann. Sá var líklega alkóhólisti, en hann sat bara frammi drekkandi með öðrum hnöttóttum körlum allan daginn í stað þess að sjá um staðin. Gleymdi oft að gera vaktarplön. Var tæknilega séð “yfirkokkur” en kunni ekkert í eldhúsinu og hjálpaði bara ef algjör þörf var á því og aldrei lengur en hann komst upp með. Hann hjálpaði til dæmis aldrei með tiltekt í lok vaktar í þau fáu skiptin þar sem hann var með okkur í eldhúsinu. Kokkar voru stanslaust að segja upp störfum, og hann var ekkert smá latur í að ráða nýtt fólk sem leiddi bara til meiri erfiðleika og streitu á eldhússtarfsfólk sem leiddi náttúrulega til þess að fleiri fóru að hætta að vinna þarna þar sem launin voru einfaldlega ekki þess virði. Allir hötuðu hann.
Það var eitt atvik sem var svo slæmt að það leiddi til þess að ég sagði honum daginn eftir að ég ætlaði að hætta að vinna þarna. Hann kom ekkert smá illa fram við einn starfsmann, unga konu og innflytjenda. Það illa að henni var ógnað af honum. Ekki kynferðislegt né ofbeldislega, en þó svo andstyggilegt að ég gat ekki hugsað mér að vinna þarna mikið lengur. Ég segi ekki hvaða staður þetta var en ég vona að hann fari á hausinn fljótlega, þó að það sé mjög ólíklegt. Þessi sem hann ógnaði er þó löngu hætt að vinna þarna sem betur fer. Hún íhugaði að fara í stéttafélagið eða jafnvel til lögfræðings en gerði það ekki.
e: Einnig vann á gistiheimili á Akureyri sem unglingur þar sem launum var stolið af mér. En sá var svo seinna gripin fyrir fjársvik og er núna í fanglesi lol. Gott á skíthælinn.
Hótel – Vann þar sem kokkur. Er ekkert lærður sem kokkur en var ráðinn inn sem spaði samt. Meiri parturinn af kokkunum voru alkar og það var tímabil þar sem að þeir voru svo blautir að það þótti merkilegt ef þeir mættu yfirhöfuð. Þannig að ég og annar nemi rákum staðinn í tvær vikur.
Ég var einn að vinna í eldhúsi að græja hádeigismat handa staffinu þegar að djúpsteikingarpotturinn springur upp. Ég er nota bene hinum megin í eldhúsinu þannig ég sé ekki einu sinni pottinn, vissi ekki að hann væri yfirhöfuð í gangi og veit ekkert hvað er búið að vera að steikja í honum. Það var eins og einhver hefði skvett vatni út í hann og allt út í gufu og reyk þannig að kerfið fór í gang. Sá sem að var að sjá um veitingastað við hliðina á ákvað að koma og öskra á mig fyrir að setja kerfið í gang. Svo kom hótelstýran og öskraði á mig með honum fyrir að setja kerfið í gang. Endaði með því að ég þurfti að öskra á þau að ég hefði ekkert verið að nota helvíts steikingarpottinn, ég var bara fyrstur á staðinn, allt á meðan þau hrauna og drulla yfir mig,
Datt í stiganum af því að öryggisteipið sem að gefur extra grip var búið að nuddast af yfir árin og einhver var að skúra hringstigann án þess að setja upp skilti. Endaði úlnliðsbrotinn útaf því. Yfirmaðurinn var alltaf, eins og allir lélegir yfirmenn, drullulatur við að gera vakta plan. Ég átti að vinna alla daga í tvær vikur, 12 tíma mininum, því að fólk var veikt. Ég samþykkti það af því að ég var fífl sem að trúði því að “hard work pays off” en með því skilyrði að hann setti það á vaktaplanið. Hann tók mig útaf vaktaplaninu “þar sem að ég væri hvort sem er alltaf að koma restina af mánuðinum, það var bara auðveldara”. Yfirmanneskjan glotti get ég svo svarið þegar hún sagði að þau myndu bara borga þær vaktir sem að ég var á skv plani eftir að ég var kominn í gifs, Þær voru tvær eða þrjár samkvæmt gamla vaktaplaninu, henni var alveg sama um hvað alvöru vaktaplanið var . Breyttist í henni tónninn þegar ég stóð upp og sagði “við sjáum til hvað vinnueftirlitið og stéttarfélagið mitt hafa að segja um það”
Labbaði út einn daginn því að ég var að fá þreytu/stress mígreini og var búinn með verkjalyfin sem að gætu komið í veg fyrir það. Það voru til verkjalyf, en mér var bannað að fá þau því að þau voru handa kúnnum, það voru önnur handa staffi. Þegar ég spurði hvar þau voru var svarið “ég man ekki hvert ég setti þau” og var sendur aftur að vinna. Kláraði verkefnið svo að ég myndi ekki eyðileggja fyrir samstarfsmönnum mínum sem að mér líkaði vel við, tók af mér svuntuna og labbaði út. Þau drógu alltaf á eftir sér að gefa mér samning(svo þau gætu rekið mig hvenær sem er, sem að tíðkaðist) en það fer í báðar áttir.
Fékk klórgas eitrun þegar ég vann í sundlaug. Píparinn var að tengja klórdælur og notaði vitlausar pípur þannig að coating-ið myndaði klórgas. Mælirinn sem á að koma í veg fyrir að svona gerist var ekki í sambandi vegna framkvæmda. Sagði að ég þurfti að fara upp á sjúkrahús, var sagt að taka mér bara þann tíma sem ég þurfti inn á kaffistofu. Ég var mjög dasaður og gerði það sem að mér var sagt. Á endanum ákvað ég að ég þurfti að fara upp á sjúkrahús og var sendur á hjólinu þangað. Ég þurfti að spurja í hvaða átt það væri. Í heimabænum mínum. Rataði ekki á sjúkrahúsið. Var heppinn að ég var með mikið kvef þannig að horið virkaði sem hálfger filter og ég var ekki þarna niðri lengi, en ég var með lága súrefnistölu og þurfti að vera í nokkra tíma á sjúkrahúsinu til að jafna mig. Brenndi nefið mitt að innan soldið illa og fann ekki lykt í soldin tíma.
Launaþjófnaður er stærsti þjófnaður allra tíma. Við erum að láta börn vinna frá 13 ára aldri og sendum þau í vinnuskóla? Fyrir hvað? Við erum alin upp við að vinnan göfgi og eigum að fórna líkama og sál fyrir skítalaun og vanþakklæti. Við erum heppin á íslandi miðað við t.d. bandaríkin en valdanýðsla og misnotkun á þeim sem að þekkja ekki réttindi sín er allt of algeng og á ekki að’ lýðast. Ekki taka við neinu kjaftæði og ekki leyfa þeim að komast upp með það.
Og til þeirra blaða manna sem að ætla að fara í gegnum þessi komment til gera einhverja djúsí grein, ef að sú grein er ekki ætluð til vitundarvakningar heldur meira “þú munt ekki trúa hvða fólk er segja” grein, slepptu þessu þá.
Ég er með fullt fleiri sögum af svona nýðslu og allir sem ég þekki hafa einhverja reynslu af svona nýðslu. Þetta er ekki í lagi.
Ættum líka að hafa hrósþráð fyrir góðar reynslur
Ok mannlíf búið að gera “frétt” úr þessum þræði og vitnað i mig í titlinum. Eg gaf enga heimild. Hvaða aumingjar starfa þarna.
https://www.mannlif.is/frettir/innlent/thetta-eru-verstu-vinnustadir-landsins-eg-helt-ad-mer-vaeri-ad-blaeda-ut/
Góðar sögur en það vantar samt nöfnin á flestum fyrirtækjunum. Name and shame fólk!
Ég vann hjá Póstinum jólin 2016 að keyra út pakka, kvöldvaktir kl 14-22, sem var í sjálfu sér nokkuð næs.
Þá daga sem maður var ekki að vinna var hægt að skrá sig á úthringilista, en það var sérstaklega tekið fram að það var ætlast til þess að maður myndi mæta ef það væri hringt í mann, en samt fékk maður ekki greitt fyrir það að vera á bakvakt. Major red flag, en ég var ungur og fannst þetta ekkert stórmál.
Einn dag, 31. Desember 2016 tek er hringt í mig því að ég skráði mig á úthringilistann, ekkert mál ég tek þetta. Það var ferðataska sem hafði týnst tímabundið á flugvellinum, og ég var að fara með töskuna út á land til farþegans sem var í Vík í Mýrdal. Þegar ég er kominn á Hvolsvöll þá er ég að verða bensínlaus, það vill svo óheppilega til að fyrirtækjakortið var þannig að einungis var hægt að nota það til þess að greiða inni í verslun N1. Það var gamlárskvöld og verslunin var lokuð, þannig að ég hafði engra kosta völ heldur en að greiða fyrir bensínið sjálfur, og rukka vinnuveitandann fyrir bensínkostnað.
Þar byrjar vesenið, vegna þess að ég var ekki með kvittun (ehv hluta vegna þá prentaðist ekki út kvittun þrátt fyrir að ég valdi að ég vildi kvittun, og að sjálfsögðu var ekki hægt að fara inn í verslunina og fá hana útprentaða, því það var lokað) þá var hagdeildin með leiðindi.Ég útskýrði afhverju ég var ekki með kvittun, og senti þeim screenshot úr heimabankanum af færslunni 3. Janúar. Það virðist vera að þeim fannst það ekki nóg, en ég fékk engar upplýsingar um hvað ég gæti gert til þess að redda þessu.
Ég þurfti að minna á þetta 5 sinnum yfir næstu 27 daga til þess að fá endurgreitt. Það endaði á því að yfirmaður minn persónulega millifærði á mig (þvílíkur meistari btw) fyrir kostnaðinum og dílaði við hagdeildina sjálfur. Það var hægt að fá kvittunina senta frá N1 eftir að við sögðum þeim hver upphæðin var, staðsetning, og sirka klukkan hvað þetta var.
Árni Valur Sólonsson, eigandi Capital Hotels, er meiriháttar svindlari:
[https://www.efling.is/2019/05/efling-motmaelir-hopuppsognum-a-hotelum-arna-vals-solonssonar/](https://www.efling.is/2019/05/efling-motmaelir-hopuppsognum-a-hotelum-arna-vals-solonssonar/)
Væri ekki rétt að nefna þennan þráð : **Þrælahald á Íslandi í dag.**
Maður er snortin að lesa þetta.
Hæ öll.
Ég heiti Phoenix Ramos og ég vinn sem eftirlitsfulltrúi hjá Eflingu.
Endilega sendið mér PM ef þið viljið ræða vinnuaðstæður. Ef þú ert ekki í Eflingu get ég komið upplýsingum áleiðis til annarra stéttarfélaga.
Allt sem mér er sent er í fullum trúnaði og ég mun ekki taka til neinna aðgerða án þess að fá leyfi þess sem sendir skilaboðin.
Hér er allt starfsfólk eflingar, þar er nafn mitt og mynd af mér. Þú mátt senda mér tölvupost með þessa vefsíðu:
https://www.efling.is/um-eflingu/starfsfolk/
Hi all
My name is Phoenix Ramos and I am a workplace inspector with Efling.
Please feel free to send me a PM if you want to discuss your working situation, and I would be happy to assist you. If you are not in Efling I can get your information to the other unions if you would like.
Anything you send to me is in complete confidence and I will not take any further action without your permission.
If you do not feel comfortable contacting me via Reddit, you can PM me and I will send you my efling email or you can send me an email via our staff page:
https://www.efling.is/um-eflingu/starfsfolk/
Vann hjá verktaka fyrirtæki í nokkur ár, laun komu seint og illa.
Verkfærinn handónýt, öll tól og tæki. Fór einu sinni í strætó með stórar tröppur og nokkrar málningarfötur ásamt yfirbreiðsludúk og málningarskafti til að geta unnið. Eigandinn lagði bílnum og njósnaðu um starfsmenn, setti upp myndavél á verkstæðinu og fylgdist með starfsmönnum. Þegar fyrirtækið var óstarfhæft vegna skorts til innkaupa á efnum fór hann og keypti allt nýjasta nýtt fyrir sig svo hann kæmi vel fyrir í sjónvarpsþættinum Gulli Byggir.
Hann heimtaði að heilu blokkirnar yrðu málaðar í frosti og á sumrin voru ráðinn börn sem hann sendi eftirlitslaus og án allrar þekkingar á vinnubrögðum að mála 300 glugga. Og rukkaði svo eins málningarmeistari hefði framkvæmt verkið. Það var skipt um kennitölu svona þrisvar á ári sem gerði það að verkum að þegar afkvæmi mitt kom í heiminn átti ég ekki rétt á fæðingarorlofi. Djöfull var ég vitlaus að púkka uppá þetta skíta fyrirtæki.
Ég var að vinna hjá smíðafyrirtæki. Það var ömurlegt að vinna þarna. Á meðan ég var að vinna þarna tók yfirmaðurinn við verki til að rífa niður þak með asbest í því. Ég var ekki sentur þarna en hann gaf verkamönnunum enga vörn. Hann ætlaðist til að þeir notuðu bara venjulega Grímu. Það var þó var hringt í vinnueftirlitið og vinnan var stöðvuð þangað til að hann náðu í almennilega rykvörn
2006, vann í matvöruverslun. Kassastarfsmenn máttu ekki fara á salernið nema í hádegishléinu eða kaffihléinu.
2010, vann í annarri matvöruverslun, ég var eitthvað pirruð útí eitthvað tilgangslaust sem ég man ekki núna, yfirmaðurinn minn horfði á mig hneykslaður og spurði “vá ertu á túr eða??”
Ég starfaði einusinni á lager í raftækjaverslun sem hefur verið í rekstri lengi og með mjög þekkt vörumerki.
ég ætla taka það fram að ég var að hætta í vinnu sem mér líkaði en bara hennti alls ekki þar sem ég komst að því að ég ætti von á barni eftir 7-8mánuði og ég ætlaði bara að fara vinna “eðlilegan vinnu tíma” **BIG MISTAKE!**
Lagernum var skipt upp í nokkrar deildir og sá ég um eina deildina.það var búið að segja við mig að þetta væri góður vinnustaður, ekkert of stór eða of lítill og *eigandinn væri samgjarn og góður maður*, ég hugsaði að þetta væri bara aldeilis fínn staður til að vinna hjá og tók því starfi frekar en hjá öðru fyrirtæki sem ég sótti um hjá þar sem þetta fyrirtæki var eldra og þekktara.
Fyrsti rauði fáninn var bara annar dagurinn minn, lager húsnæðið sem ég var í er staðsett annarstaðar í bænum og gæinn sem ég var að fara vinna með kom 20mínútum of seint þannig að ég beið fyrir utan, nd. ég er bíllaus, þangað til hann kom.
Sama dag kemst ég að því að þessi strákur er að fara hætta og ég mun taka við af honum.Ég kemst líka að því að yfirmaðurinn minn er að hætta og það er búið að ráða nýjan lagerstjóra. Ég og þessi strákur byrjum aðeins að spjalla saman hann sýnir mér vinnustaðinn og við svona spjöllum aðeins um daginn og veginn bara þetta týpíska og þá segir hann mér eitt sem ég hló af því ég hélt að hann væri að djóka, hann sagði að ég mun endast þarna í mestalagi 6mánuði og ætti að halda áfram að leita mér af annari vinnu og hann sagði mér að starfsmanna veltan þarna væri svo mikil að hann var elsti starfsmaðurinn á lagernum eftir eitt og hálft ár í starfi. Ég fékk vinnu síma sem ég mátti nota sem minn eiginn síma en þessi sími hringdi að lámarki 40 símtöl á dag og ég er ekki að ýkja versti dagurinn minn voru 117símtöl einn daginn, hringingarnar byrjuðu kl 7 og hættu kl20:00, vinnu tíminn minn var 9-17,30.
hlutirnir og brotin sem ég varð vitni af þarna ættu að vera til þess að þessi staður hefði átt að vera lokað á meðan farið væri yfir verkreglur og réttindi starfsmanna.
Þetta er í fyrsta og eina skiptið sem ég hef lent í svokölluðu burnouti eða kulnun í starfi og líkamleg og andleg heilsa var orðin svo slæm að læknirinn minn skrifaði uppá vottorð um að ég varð að hætta STRAX að vinna og átti að taka því rólega þar sem hjartslátturinn var kominn hættulega hátt og hvíldarpúlsinn hjá mér var í 107 og ég var á góðri leið að fara fá slag.
Ég var farinn að vakna á nóttunni til þess að skrifa niður verkefni svo ég gleymdi þeim ekki.
**þetta er orðin ansi löng langloka þannig að ég ætla gera svona semí stutt tl;dr púnkta.**
* starfaði hjá þessu fyrirtæki 10 mánuði
* þegar ég hætti var ég elsti lagerstarfsmaðurinn
* var með alls 3 lagerstjóra og þriðji lagerstjórinn er hættur í dag.
* varð vitni af tveimur mjög vafasömum uppsögnum
* Sölumenn lugu ítrekað af viðskiptavinum
* þetta er mjög toxic vinnustaður, homophonic, karlrembu og sexist staður
* Maður varð að ganga á eftir yfirvinnu kaupinu
* Gleraugun mín brotnuðu í vinnunni og útaf vinnu þau tóku EKKI þátt í að kostnaði.
* salan jókst um 35% bara í minni deild og það átti ekki að ráða inn fleiri starfsmenn og átti ég bara að taka þessu á mig þegar nú þegar var of mikið álag á mér.
* það var hringt í mig í fæðingar orlofi nánast daglega.
* Mér var neitað að taka lengra fæðingarorlof en mánuð.
* Þeir skiluðu seint inn pappírum til fæðingaorlofssjóð og varð ég að íta á þá.
* Eigandinn sagði við mig “hvað ætlarðu að gera í svona löngu orlofi, ég gæti ekki verið svona lengi heima”
* Þegar ég hætti frétti ég það að ég hafi verið kallaður aumingi og letingi af eigandanum. sem er svolítið fyndi að fyrirtæki sem þeir versla mikið við buðu mér starf sama dag og ég hætti.
* eftir 6mánuði með VR að reyna innheimta kaup sem ég átti inni 650.000kr þá var gerður samningur uppá að borga 300.000kr því ég var gjörsamlega búinn að fá nóg af þessum manni og fyrirtæki og vildi bara lostna við þennan bagga úr lífinu mínu. þannig að hann tæknilega skuldar mér enþá 350.000kr
* Ég get talið svona 100 punkta í viðbót um ruglið á eigandanum og fólk í stjórninni hjá þessu fyrirtæki.
Strákarnir sem ég var að vinna með og lagerstjórarnir voru mjög næs.
Ég komst að því að fólkið sem talaði vel um eigandan á þessu fyrirtæki er fólk sem aldrei heftur unnið fyrir hann heldur bara kynnst honum í gegnum tíðina, eftir á hef ég heyrt hrillingssögur um þennan mann sem er bara harðsvífin fyrirtækja eigandi.
Ég vill enda á því að þakka Heimilislækninum mínum, VR, Virk og sálfræðingi mínum fyrir að hafa stutt við bakið á mér í meira en ár í þessu mér að kostnaðalausu þannig séð.
Fyrsta reynslan mín á vinnumarkaðnum 2011, þegar ég var á mínu átjánda ári, var hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi. 13 tíma vaktir, 06:00 til 19:00, kom alveg fyrir að það vantaði á næturvaktina og þá var maður þarna í 17-18 tíma. Persónulega fannst mér vinnan sjálf bara fín, færa til einhverja kassa inná frysti í -20°C, ég meina, maður svitnaði þó amk ekki á meðan. Dealbreakerinn var hinsvegar að fá útborgaðann 80k á tveggja vikna fresti. 160k á mánuði. Og það með fullnýttu skattkorti.
Það fyndnasta var að þegar maður var að skrifa undir ráðninga pappírana OG í kynninguni fyrsta daginn þegar manni var úthlutuð staða, þá var sagt að hver starfsmaður fengi XXkr “bónus” (minnir að það hafi verið talað um 50kr á skrokkinn) fyrir hverja einustu rollu sem færi í gegnum húsið á vinnutíma.
Það var svona tímaklukka þar sem maður átti að skrá sig inn í vinnuna og svo út að lokinni vakt en það var alveg augljóslega aldrei farið eftir því, og ekki borguð nein yfirvinna.
Samkvæmt calculator í tölvuni minni, ef ég var að vinna 13 tíma vaktir minimum, 5 daga vikunar, í heilan mánuð, þá var ég að vinna svona ca. 300ish klst á mánuði (miðaði við að vinna 24 daga mánaðarins en það getur náttúrulega alltaf verið breytilegt, 24×13=312) og ef maður gerir 160.000 / 300 = 533. Þannig að ég hef verið með Ice Cool 533kr á tímann…. …fyrir vinnu sem var vægast sagt mikið líkamlegt álag…
Svo var alltaf verið að tala um hvað það væri nú hellað dæmi að vinna í SS, gott kaup og gott að borða… …það var jú reyndar gott að borða…
Bautinn akureyri rekur líka rub23 og sushi corner, ömurlega borgað, vaktir teknar af manni, illa komið fram við mann, mikið launavesen tengt orlofi & desemberuppbót, voru mörg sem fengum ekki des uppbót , færð varla pásur, mæli alls ekki með þeim stað, en hef heyrt þetta frá mörgum fyrrverandi starfsfólki þar