Aukin framlög til heilbrigðismála

5 comments
  1. [Þetta er því miður ekki í raun aukin framlög, heldur bara tölur pússaðar til þangað til þær líta betur út.](https://www.facebook.com/bjornlevi/posts/10159978734511869)

    Ekk trúa því sem ríkisstjórnin segir ykkur um hennar eigin verk, sérstaklega ekki Fjármálaráðuneytinu með Bjarna Ben í forsæti. Reyndar, bara ekki trúa fólki án frekari skoðunnar nema þið hafið reynslu af því að það hið sama fólk geti verið einlægt með það sem hefði mátt betur fara. Ágætis regla í lífinu, ekki bara í pólitík.

  2. Ég hef aldrei kosið sjálfstæðismenn og er ekki sammála mörgu hjá þeim, en það þýðir ekki að vera neikvæður gagnvart öllu sem frá þeim kemur, mér finnst þetta samstarf hafa gengið ágætlega vel hingað til og sjálfstæðisflokkurinn og vinstri lært ýmislegt gagnlegt af hver öðrum. Þeir eru að ræða stjórnarskrármálið af meiri alvöru, þeir eru að reyna að koma þessari einkavæðingu á sem mörgum líkar illa við og ég skil það, en þeir hafa að minnsta kosti opnað á umræðu og reynt að finna málamiðlanir sem leyfa þeim samt að fá sýnu fram.

    Er bara segja að menn eru oft með dómsdagsspár útaf öllu og eg held að það myndi þjóna okkur betur að reyna sýna jákvæð viðbrögð við réttum hlutum og neikvæð viðbrögð við réttum hlutum í staðin fyrir að byggja viðbrögð okkar alltaf á því úr hvaða kjafti hlutirnir komu.

  3. Þá vantar ekki nema 74milljarða miðað við áætlanir sem vantaði upp á svelta kerfið á þessu ári. Geri ráð fyrir að þetta haldi ekki mikið í við verðbólgu og styttingu vinnuvikunnar.

Leave a Reply