Dæmdur morðingi skrifar sjálfsævisögu og þar breytir hann málsatvikum morðins sér í vil.

9 comments
  1. Afsaka DV linkinn en er bara í lagi að dæmdur morðingi fái að gefa út sjálfsævisögu þar sem hann meðal annars fjallar um þegar hann lúbarði 22 ára dreng til dauða án þess að hafa fengið leyfi eða rætt við fjölskyldu hins látna. Og ekki nóg með það, þá reynir hann að réttlæta hegðun sína og lýgur því að hinn látni hafi átt upptökin.

    > Héraðsdómur féllst á að Z hefði átt einhvern þátt í upphafi átakanna. Ljóst er þó af framburði vitna að tilefni árásar ákærða Baldurs Freys á Z var smávægilegt.

    Auk þess krafðist þessi drulludeli að hann yrði sýknaður. Hann var aðeins dæmdur í 6 ára fangelsi fyrir basically tvær alvarlegar líkamsárásir og eitt morð, hann hefði átt að fá 20 ára dóm.

    Svo eru allir fjölmiðlar sleikjandi manninn upp, auglýsa þessa bók og takandi viðtöl við hann. Ef ég væri foreldri hins látna væri ég gjörsamlega æfur.

    > Atvik málsins eru rakin í héraðsdómi. Svo sem þar greinir er ákærða Baldri Frey í fyrsta lagi gefið að sök að hafa aðfaranótt sunnudagsins 7. apríl 2002 á A við X-götu í H veitt Y högg með höfðinu svo að hann féll í gólfið og hlaut heilablæðingu og höfuðkúpubrot. Í öðru lagi hafi hann síðar sömu nótt á X-götu veitt Æ högg í andlitið með höfðinu og hafi hann við það hlotið 2,5 cm skurð í hárssvörð rétt ofan við enni og einnig hafi tvær framtennur losnað í efri gómi. Í þriðja lagi er honum ásamt ákærða Gunnari Friðrik gefið að sök að hafa að morgni laugardagsins 25. maí sama ár ráðist að Z í D-götu í H. Hafi ákærði Baldur Freyr slegið Z mörg hnefahögg í höfuðið, veitt honum högg með höfðinu og sparkað með hné í höfuð honum og eftir að hann féll í götuna sparkað margsinnis af afli í höfuð hans með hné og fæti. Ákærði Gunnar Friðrik hafi síðan eftir að Z reis upp eftir atlögu ákærða Baldurs Freys sparkað í efri hluta líkama hans svo að hann féll í götuna á ný. Afleiðingar þessa alls hafi orðið þær að Z hlaut höfuðkúpubrot og blæðingu inn á heila og lést 2. júní 2002 af völdum þessa og heilabjúgs.

    > Ákærði Baldur Freyr er nú sakfelldur fyrir þrjár alvarlegar líkamsárásir og refsing ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga. Árásir þessar voru að mestu tilefnislausar og sérlega hrottafengnar.

    https://www.haestirettur.is/default.aspx?pageid=347c3bb1-8926-11e5-80c6-005056bc6a40&id=74f67e2d-f67e-41bc-83e5-c39aa4a05221&fbclid=IwAR1KCtvOSUsT6-RLMNQau44u6yICWHCPl8IvknuhInWt7W4Vbf5L9J49Bt4

  2. Svo er hann víst með einhvern sértúarsöfnuð sem hann er höfuðið á og er að veita fólki td hjónabandsráðgjöf án þess að hafa til þess neina mentun eða þekkingu í skjóli þess að meðeigndi fyrirtækissins er með leyfi frá Landlækni.

    Að mínu mati merki um gersamlega siðlausan einstakling.

  3. Þessi gæji kom til okkar í lífsleikni þegar ég var í Menntó og var með eitthvað kristniboð. Hann hefur þá verið alveg nýsloppinn úr fangelsi.

    Hann sagði frá því að hann hafi barið mann til dauða með berum höndum – En það væri allt í lagi. Það væri eins og það hefði aldrei gerst. Því Guð fyrirgaf honum. Guð fyrirgefur nefninlega öllum.

    Þetta var bara…. ógeðslega óþægilegt.

  4. Streisand effect

    En hvaða verslanir eru í alvörunni að taka þetta ógeð sem er “bók” og selja? Spurning með að tússa yfir smettið á þeim eintökum

  5. Ég kannast við manninn. Honum þykir mjög leitt hvernig fór þegar að strákurinn dó, en fyrir þá sem ekki vita þá var þetta hnefaghögg sem varð að banahöggi.
    Maðurinn var langt leyddur í fíkniefnun þegar að þetta átti sér stað. Hann snéri blaðinu við eftir þetta og hefur helgað lífi sínu guði eftir það og langar að hjálpa öðrum.

  6. Ég…er í smá sjokki! Vil ekki segja of mikið á svona opinberum vettvangi en við skulum bara segja að siðblindu-radarinn minn virkar greinilega. Hafði ekki hugmynd um neitt af þessu en tók SPRETTINN í hina áttina þegar ég hafði mögulega á endurteknum samskiptum.

    Mikið finn ég til með fjölskyldu fórnarlambsins að þurfa að sjá þessar bækur í búðum, ekki segja mér að smettið á honum sé forsíðan?

Leave a Reply