Kíkti af forvitni í dag á Top 50 Iceland listann á Spotify og mér til mikillar undrunar þá er nánast hvert og eitt einasta lag af [Vögguvísur](https://open.spotify.com/album/2YfZ5os3DmJV9HMNX1TO6l), sem er albúm Hafdísar Huldar frá 2012, á listanum. Þetta er fínasta plata og allt það, en það kemur mér bara mjög á óvart að 10 ára gömul plata full af barnagælum sé eins og hún leggur sig allt í einu á top listum Spotify. Veit einhver hér hvað gæti útskýrt þetta?

3 comments
Leave a Reply