Staðfestu smjörbréf allra þingmanna

11 comments
  1. Allir nema Píratar kusu gegn tillögu þeirra.

    Þetta var ólöglegt. 100%. Wtf. Kæra þetta, alla leið til Evrópu.

  2. Þetta á ekki að koma neinum á óvart, enda tiltölulega langt síðan að þjóðarpúls gallup sýndi fram á að flestum þætti þetta rétta niðurstaðan. Mestur stuðningur var með að láta seinni talnigu gilda, næst mest með að láta fyrri talningu gilda. Aðeins 36% studdi endurtalningu, annað hvort í NV eða landinu öllu, og þar aðallega bara Píratar og xJ.

    Þetta fer að verða hálf barnalegt með “tRaUsTiÐ á lÍðrÆðInU eR hOrFiД og “íSlAnD bAnAnA lÝðVeLdI.” Auðvitað hefði uppkosning verið heppilegast til að hlutirnir séu bara svona nokkurn veginn réttir.

    “Ætlar fólkið að láta bjóða sér þetta.” Já, og ef traustið á lýðræðinu er raunverulega horfið býst ég við Búsáhaldar 2.0 næstu daga. Efa að margir láti sjá sig.

  3. Allt sem þetta þing* og þessi ríkisstjórn* gerir mun ávalt vera stjörnumerkt.

    * Ekki kosið samkvæmt lögum

  4. “Alþingi sker sjálft úr, hvort þingmenn þess séu löglega kosnir, svo og úr því, hvort þingmaður hafi misst kjörgengi.” Þetta er alveg magnað.

  5. Nú er ég ánægður að hafa fjárfest í nýrri úlpu fyrir veturinn, gæti orðið helvíti kalt á austurvelli. Spurning hvort löggan muni reyna að skipta okkur niður í 50 manna hólf. Það ætti svosem ekki að þurfa svo lengi sem fólk heldur 1 metra fjarlægð og er með grímur.

  6. Mikið gert úr þessu og að vissu leyti eðlilega, en um leið og mál eru sett í nefnd þá er verið að ræða sig niður á niðurstöðu sem var kynnt í gær.

  7. Getur núna hver sem er núna stofnað sitt eigið Alþingi og kosið um eigið lögmæti, og kallað það alveg jafn lögmætt og þessa sirkús sýningu?

    Ég er að spyrja fyrir nokkra Félaga…

Leave a Reply