
Strjórnarskráróður eftir Hauk Hilmarsson “Það góða fólk vill gera drög að góðri stjórnarskrá svo brjóta megi betri lög og brjóta fleirum á”

Strjórnarskráróður eftir Hauk Hilmarsson “Það góða fólk vill gera drög að góðri stjórnarskrá svo brjóta megi betri lög og brjóta fleirum á”
3 comments
*Eftirfarandi er greinargerð mín um kosningar til stjórnlagaþings ogvæntingar mínar til þess. Hún prýddi kjörseðil minn í kosningunum.*
*-Haukur Hilmarsson til tímaritsins Rósturs*
**Stjórnarskráróður**
​
​
Þú skalt velja, þing er haldið,
þau sem talast við
um regluverkið, ríkisvaldið,
réttlæti og frið.
Það góða fólk vill gera drög
að góðri stjórnarskrá
svo brjóta megi betri lög
og brjóta fleirum á.
Auðlindirnar almenningur
eignast skamma stund
sem skríða eins og skafreinningur
skjótt í heimanmund
til AGS sem dregur deyfða
drottna haf og lönd
svo endi valdið endurdreyfða
allt á sömu hönd.
Ef blásið fjandans biskupsfólið
burtu er í haust
hann ræna mun og reka í bólið
ríkið grímulaust.
Það bákn sem vísar börnum veginn
bönnum fyrrist við
og rekur oní ræfilsgreyin
ríkiskrosslafið.
Hver á sér meðal þjóða þjóð
sem þannig skilur frið:
Einskis vert er írakst blóð
og einskis sjálfræðið?
Samfélagsins sáttmálsörk
mun siða peninginn
og núa saman níð og spörk
í Níumenninginn.
Mæra þingið máttarvöld
sem mest því allt er autt,
brotamálmur búsáhöld
og bálið löngu dautt.
Þó má ekkert þessu hamla
þörf er brýn að fá
Valdinu að brjóta og bramla
betri stjórnarskrá.
-Óður
Mjög skemmtilegur flutningur og textinn auðvitað frábær líka.
Mjög flott plata