Jón Þór kærir Inga Tryggvason til lögreglu – Vísir

8 comments
  1. Vel fokking gert. Efast um að nokkuð komi út úr þessu en svona kallar mega svitna aðeins fyrir að láta þjóðina ganga í gegnum þessa vitleysu.

  2. Ég hef engan skilning á þessu leikriti.

    Við bókstaflega vitum að kosningarlög voru brotin. Við vitum að við getum ekki fullyrt að ekki var átt við atkvæðin af því þessi lög voru brotin. Við vitum að þessi lýðræðisníðingur hefur farið með mjög loðið, ef ekki einfaldlelga rangt, mál í lýsingum sínum á þessu öllu saman.

    Samt er einhver nefnd að fara sannfæra okkur að fyrst meirihluti sé til staðar í nefnd, og á þingi, til að hunsa þessar staðreyndir sem við vitum, að það sé bara allt í lagi.

    En það er ekki allt í lagi, og það verður enn minna í lagi ef það á að troða ótraustum niðurstöðum ofan í okkur. Það verður enn minna í lagi eftir fjögur ár, eða fjóra áratugi, þegar fullorðins ríkisstjórn tekur við og lætur rannsaka þetta af alvöru. Þá verða öll verk ríkisins frá því núna, og til þá, tortryggjanleg.

    Ég veit ekki hver bað um þessa leiksýningu, og mér finnst verðmiðinn “lýðræðislegt bakslag” vera of hár.

  3. Eiginlega verða að sakfella hann í þessu máli, efast um að honum verði gerð nokkur refsing samt.

    Þetta er svona týpískt mál sem að mun svo hoppa á milli dómsstiga næstu 10 árin.

  4. Ég er eiginlega alveg viss um að hann hafi ekki verið að svindla með einhver atkvæði. En mér finnst líka að það eigi að herða reglur og eftirfylgd með öllu kosningarferlinu, því ef þetta er allt í lagi að þá búum við ekki við öruggt lýðræði.

Leave a Reply