Össur Skarphéðinsson

12 comments
  1. Fyrir mörgum árum vann ég með skóla á bar á einum af dýrari veitingastöðum bæjarins. Eitt kvöld var eitthvað í kringum 20 manna hópur bókaður undir nafninu *Utanríkisráðuneytið.* Eftir að hópurinn var búinn að borða og sötra vín á borðinu komu þau á barinn og gat ég ekki betur séð en að það væri bara “opinn bar”, því allir virtust panta það sem þeir vildu og áfyllingar.

    Þegar djammið var búið kom Össur til mín hálf haltrandi og þvöglumæltur og sagði *”svo sendir þú bara reikninginn á Utanríkisráðuneytið”*, mér brá eiginlega bara og hugsaði með mér hvort þetta væri bara í lagi.

    Ég var ungur á þessum tíma og þetta atvik olli mér frekar miklum vonbrigðum, og má segja að hafi markað upphaf af síaukinni tortryggni minni gagnvart nýtingu skattpeninga almennings.

  2. Klárlega einn skemmtilegasti pólitíkus landsins. Ófullkominn og hvatvís en orðheppinn og hnyttinn. 4.5* af 5*.

Leave a Reply