FOMO af versta toga. Verður gaman að sjá hversu margir munu þola hækkandi vaxtastig.
Erum varla kominn með annan fótinn út úr alheimsfaraldri, verðbólga hefur ekki verið jafn há í áratugi allstaðar í heiminum, framleiðni í sögulegu lágmarki, offramboð á lausafé sem og met útgjöld og skuldir ríkja sliga hagkerfin, húsnæðisverð heldur áfram að hækka, starfsmannaskortur og verkföll í aðsigi í nær öllum starfgreinum allstaðar í heiminum á meðan íslenskir stjórnmálamenn mæta í silfrið og ræða hvort að nauðsynleg lífskjarabót seinustu kjarasamninga skuli afturkalla þó verðbólga og húsnæðisverð hafi nú þegar útrýmt henni meira en þrisvar sinnum.
Gott að fjölskyldur þessara krakka séu að deila með þeim auðæfum sínum samt, þetta er jöfnunartólið sem við þurftum í samfélagið.
Vísitala íbúðaverðs er 779,5. Hún er búin að hækka um rúmlega 100% síðan 2013, á sama tíma og vísitala launa hefur hækkað um ~60%. Á einn vænginn er greinilega hryllilegur tími að kaupa núna og á hinn vænginn ætti fólk á fyrstukauparaldi að vera brennt af hrunum og efnahagslegum hörmungum, hætt að búast við að hlutirnir skáni einhverntíman, og verið að farið að líða eins og þessi brú sé bara að brenna fyrir augum þeirra.
Það er alltaf slæmur tími til að kaupa sig inn á fasteignamarkaði í efnahag þar sem fasteignir eru fjárfestingar sem hækka alltaf í verði.
Það er örugglega enn verri tími núna, fyrst að fjármagnseigendur eru að halda að sér höndunum.
Fólk verður samt að búa einhversstaðar, helst þar sem það hefur aðgengi að þjónustu og vinnu.
Það er ógeðslega leiðinlegt hvað það er búið að vara mikið við þróun húsnæðismála hérna frá því fyrir hrun, og samt erum við hérna eftir allan þennan tíma sem hefði getað farið í að leysa um hnútinn frekar en að sitja á honum á meðan það þrengist og þrengist meira að yngri kynslóðum okkar.
Meðalaldurinn er 29 ár. Það er verulega hátt í sögulegu samhengi.
Foreldrar mínir voru 20 og 19 ára þegar þau kaupa sína fyrstu eign.
4 comments