Segir um­deilda til­lögu Ás­mundar að­för að leik­skóla­stjórn­endum.

3 comments
  1. Framsókn leysir málið!

    Vandinn við leikskólana hefur hingað til verið talinn að það vanti fólk til að vinna á þeim en Ásmundur hefur fundið lausnina með því að horfa á vandamálið frá hinum endanum.

    Við bara hækkum leyfilegt hámark barna á starfsmann. Framlegð eykst og kostnaður á barn minnkar. Vandamálið er í raun krafa leikskólastjórnenda að hafa lokaorðið um hve mörg börn þau telja sig geta haft á leikskólunum.

    Hverjum hefði dottið í hug að viðskipti ársins kæmu úr ráðuneyti þetta árið…

    Það var bara best að kjósa framsókn 😊

  2. Láta álagið á spítölum vera svo gríðarlegt að fólk fer að vinna við annað => hræðilegt ástand því það tekst ekki að manna stöður => sífellt verra ástand vegna kulnunar og endurtekningu á skrefi eitt.

    Sjálfstæðisflokkurinn [lætur eins og fjármagn geti ekki mögulega leyst](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/06/07/aukid_fjarmagn_leysir_ekki_oll_vandamal) vandamálið [síendurtekið](https://www.visir.is/g/20212140434d) => hrörnandi samfélag.

    Gegnsær hugmyndastuldur hjá Framsókn.

  3. >Í drögum að breytingunni sem Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra kynnti í samráðsgátt fyrr á árinu segir að ákvörðun um fjölda barna á leikskólum skuli áfram vera tekin í samstarfi leikskólastjóra og sveitarstjórnar. En ef komi til ágreinings um fjölda barna hverju sinni þá taki sveitarstjórn ákvörðun.

    Semsagt, sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjölda barna á leikskólum.

Leave a Reply