25.000 manns?? Líklega er þetta fólk sem telur sig vita betur. Geta mögulega vísað í rannsóknir þess efnis að það séu tengsl á milli notkunar bílbelta hjá barnshafandi konum og einhverfu.
Loftpúðar sem aðstoða bílbelti í árekstri gætu gert meiri skaða ef beltin eru ekki notuð.
Þetta er svona tilfelli þar sem frasinn “deyja úr töffarastælum” á ansi vel við.
Veistu miðað við hvernig margir keyra kemur þetta ekki á óvart.
Ég vill sjá strangara bílpróf og ítarlegri kennslu. Einnig væri frábært ef lögreglan væri sýnilegri í umferðinni, hvort sem er með myndavélum eða til að sekta fyrir ógætilegan akstur. Ég vill sérstaklega benda á 20gr umferðarlaga *Ökumaður á aðrein skal aðlaga hraða ökutækis síns umferð á þeirri akrein sem hann ætlar inn á og fara af aðreininni strax og það er unnt án hættu eða óþarfa óþæginda. Ökumaður á akrein sem umferð af aðrein fer inn á skal auðvelda þeirri umferð akstur inn á akreinina.*
Sem gífurlega margir á höfuðborgarsvæðinu eiga erfitt með.
Hvaðan koma þessar tölur og hvert er viðmiðið?
Slumpa á að þetta séu um 10% af öllum með bílpróf á islandi, er það ekki hrikalega mikið?
Er viðmiðið: Nota aldrei belti eða sleppi því stundum?
Ég vann áður fyrr tengt bílaiðnaðinum hér og brá í hvert einasta skipti sem ég komst að því að einhver notaði ekki belti og fannst það alls ekki vera algengt.
En þrátt fyrir það, notið helvítis beltin maður. Ég bara get ekki keyrt án þeirra og skil þetta engan veginn. Er fólk svona töff, finnst þau óþægileg eða gleyma þau þeim bara ?
Mér finnst bara óþægilegt að keyra án bílbeltis. Geri það einstaka sinnum þegar maður er bara að færa bílinn eða eitthvað og finnst ég bara vera svo laus í sætinu án þess.
Það er brot á borgararéttindum mínum að þvinga mig til að nota belti. Ég ræð mínum líkama og hver veit hvaða langtímaáhrif þessi belti hafa!? hafi þið séð hvernig fólk getur farið illa út úr því að vera í belti? [þetta](https://medmovie.com/_uploads/2754_Panel_011-1030×772.jpg) er ekki sýnt í ökuskólum landsins en bílbeltið olli þessum meiðslum. Bókstaflegt hryggbrot sem tugir ef ekki hundruðir þúsunda hafa hlotið.
og vissu þið að bílaframleiðendur eru ekki ábyrgir fyrir þeim meiðslum sem bílbeltin sem þeir framleiða valda!
Vissu þið að Ford framleiddi bílin Ford Pinto og Ford vissi að hönnunargalli gerði hann að eldhættu en seldi hann samt! og Toyota seldi mottur í bílana sína sem kuðluðust upp og héldu inni bensíngjöfinni og olli slysum. Purfið líka að googla diesel emissions scandal… Þessum fyrirtækjum á að treysta fyrir beltum sem Íslenska ríkið þvingar fólk til að nota!?
Það er verið að þvinga fólk til hlýðni svo það kvarti ekki þegar réttindi þeirra eru tekin af þeim, algjör tilviljun að Bill Gates er fjárfestir í AUTONATION, INC.???
opnið augun!
Ég persónulega fer ekki í bíl þar sem bílstjóri/farþegi er ekki í belti.
Og ef þú ert í bíl með mér þá skaltu fara í belti.
Mig grunar að þetta sé oft einhver tegund af óvitaskap. Komst að því fyrir nokkrum árum að einn ættingi minn sem hafði verið með bílpróf í sirka tvö ár notaði eiginlega aldrei bílbelti, ég las yfir þessum ættingja reiðilestur um heimskuna sem það væri, þessi ættingi reyndi að malda í móinn og sagðist hafa heyrt að bílbelti yllu líka oft dauða í bílslysum og nefndi dæmi þar sem bílstjóri flaug úr bílnum sínum í bílslysi og lenti í móa ómeiddur en bíllinn endaði aftur á móti í köku. Ég lagði í að rökræða við hann og hrekja ruglið sem hann var búinn að lepja upp frá öðrum og það gleður mig slatta að hann notar ávallt bílbelti í dag. Enda þykir mér vænt um þennan ættingja minn.
Note to myself:
I’ll never complain again Dutch is a hard language… at least I can read it.
Ég, nemandi sem er nýbyrjuð í ökukennslu og ökutímum að sjá öll mistökin sem FULLORÐIN eru að gera og ég fattaði ekki að væru mistök áður.
Það er heil kynslóð sem er alltaf starandi á símann sinn meðan að hún ekur, bílarnir kjögrandi frá hægri til vinstri. Væri til í að það væri eitthvað gert í því.
Hvernig get ég buið til þráð sem fær mikið af athygli þar sem við getum komið okkur saman og klappað okkur sjálfum fyrir að vera svo frábær í heimi fullan af smooth brains.
Væntanlega er skoðunin að grímulaust og óbólusett fólk eigi að deyja ekki að ná vinsældir lengur.
Næst á dagskrá:
Hvernig geta sumir notað ljosabekki?
Koma svo? Fæ ég eitt “ eitthvað eitthvað sortuæxli “ upvoat?
12 comments