Sýslumaður Íslands verður á Húsavík – Hvað þýðir það nákvæmlega?

3 comments
  1. Þetta þýðir að sýslumaðurinn sjálfur og hans allra nánasta samstarfsfólk verður staðsett á Húsavík. Það verður auðvitað áfram þjónustuskrifa á höfuðborgarsvæðinu þar sem fólk getur sótt um vegabréf og þess háttar. Hversu oft þarf almenningur að hitta sjálfan sýslumanninn persónulega?

  2. Það er erfitt að segja hvaða áhrif það hefur enda hefur ráðherrann ekki lagt fram neitt frumvarp enn.

    Miðað við aðra frétt frá því í vor virðist þessi breyting samt hafa lítil áhrif á borgarana. Það verða enn sýslumannsskrifstofur alls staðar þar sem þær eru í dag en sýslumönnum sjálfum verður fækkað.

    > Í hinu nýja embætti verði ætlað að hafa umsjón með rekstri níu skrifstofa „sýslumanna í héraði“ sem yrðu þá eins konar umdæmisstjórar fyrir hönd hins eina, eiginlega sýslumannsembættis.
    Þessar níu skrifstofur yrðu aðalskrifstofur í hverju umdæmi fyrir sig, samkvæmt frétt blaðsins, og þær 15 starfsstöðvar aðrar sem reknar eru í dag verða líka starfræktar áfram, nái hugmyndir ráðherra fram að ganga. Raunar hyggst Jón festa rekstur allra 24 starfsstöðvanna í lög með frumvarpi sínu. „Þannig að ef einhver vill loka einhverri þeirra, þá verður það að fara í gegnum þingið,“

    Í fljótu bragði sýnist mér þetta bara vera frábært. Ég hef a.m.k. ekki hugmynd um fyrir hvað ríkissjóður er að borga þessum óteljandi smákóngum.

Leave a Reply