Strætó er fyrir einhverju síðan búnir að breyta leiðarvísi og tímatöflum sem eru staðsettar við strætóskýli. Búið er að fjarlægja 90% af öllum stoppum. Nema ef þú ert að stoppa í Hamraborg, Mjódd eða Hlemm verður að eyða tíma í að kíkja á appið.

Vestur hvort Leið 2 stoppar við Smáralind? Góð hugmynd að skrifa niður hvort leiðin fer framhjá stærstu verslunarmiðstöð landsins er það ekki.

[Nei. Enn við segjum þér að það eru 10 stopp áður enn Hamraborg kemur upp](https://i.imgur.com/xDw70dZ.jpg)

10 sentimetrar að auðu plássi líka sem ekkert er gert með. Mökk pyrrandi að opna appið bara til að skrá hvar ég er or hvert ég vill fara til að finna út [2 Stoppar þar](https://i.imgur.com/G3AZ1QK.jpg)

Það sem gerir þetta verra er að vita að þetta var ekki svona áður, þessu var breytt til að gera þetta verra.

11 comments
  1. Þetta finnst mer afar lélegt. Hver kannast ekki við að eiga litið eftir af batteríi og þurfa að láta það endast nógu lengi bara til að sína helvítis farmiðann. Geta hundskast til að hafa þetta vel hannað og notendavætt.

  2. Strætó: “hmmm, við erum ansi gagnslausir, en hverning getum við verið enn gagnslausari?”

    Starfsmaður mánaðarins: “ég hef hugmyndir”

  3. Ég keyri stundum utanbæjar strætó og hef lent í því að maður í eldri kantinum kom á stoppistöð til að spurja mig úti tímatöfluna à strætó. Ég bendi honum á skiltið en hann segir að það séu ekki réttar upplýsingar á því. Ég fer að athuga og það er vissulega rétt, kolvitlausar upplýsingar sem ég bara skil ekki hvaðan komu.
    Svo benti ég honum á netið í síma eða tölvu, en hann á hvorki sjallsíma eða tölvu. Einnig sagðist hann hafa reynt bókasafnið en það var lokað útaf covid.

    Svo maðurinn hafði enga leið til að nálgast þessar upplýsingar án hjálpar. Þetta var í byrjun covid ef ég man rétt. Þetta skilti er ennþá vitlaust þràtt fyrir tvær ábendingar frá mér. Fyrir utan þennan mann sem er versta dæmið, þá hefur þetta skilti ruglað aðra sem ég hef verið vitni af, man eftir 3 sem misstu af rútunni útaf því t.d.

  4. Minnir að ég hafi lesið einhvers staðar að Strætó hafi ætlað að koma upp skjáum með leiðaupplýsingunum (og örugglega fleiri upplýsingum). Líklega þannig að það sé einfaldara að breyta tímatöflunum og leiðunum.

  5. Strætó bs: hvernig getum við gert lélegar almmeningssamgöngur ennþá lélegri hérna á Íslandi? Grínlaust ég man eftir því að vera með hnút í maganum þegar ég var lítill og átti að taka strætó vegna óvissu og erfiðleika að átta mig á því hvert þeir voru að fara.. Oftar en ekki fékst ekki einusinni svar frá bílstjórum. Það var td rosalega gefandi að enda á endastöð í Mosó 12 ára gamall því bílstjórinn vildi ekkert hjálpa.

  6. Ömurleg þjónusta, pirraðir bílstjórar og koma oftast seint. Geta ekki sent tvo vagna á sína vinsælust leið, en geta sent glænýja stóra vagna á fáfarnari hverfisleiðir. Ég kemst oft ekki inn vegna troðnings, og þá er enginn fjarlægð milli fólks. Strætó þyrfti samkepppni

  7. Hver man ekki eftir kauðanum sem setti upp allt leiðarkerfi strætó á ótrúlega einfaldann máta með því að taka þáverandi leiðarkerfi og setti það allt upp í sömu formúlu og leiðarkerfið í london (litakóðaðar línur í svipuðu formatti og þeir setja þetta upp úti) … leit ótrúlega vel út og einfaldaði ótrúlega mikið.

    Hann bauðst til að gefa strætó afraksturinn.

    Strætó smellti sér í eitt stykki lögbann og hótaði lögsókn á kauða.
    Topp fyrirtæki.

  8. Vá, þetta er alveg extra stórfenglegt fyrir fólk sem ratar ekkert sérlega vel á höfuðborgarsvæðinu.

    Nei, veistu, eftir að hafa horft aðeins lengur á þetta, þá er þetta bara hræðilegt fyrir alla. Hvaða leið fer hann frá Hamraborg og að Hlemm? Kringlumýrarbraut? Framhjá HÍ? Snorrabraut? Ég þurfti ekkert fleiri ástæður til að þola ekki Strætó, en hey, takk fyrir!

  9. Vil minna á að þetta er sama fyrirtæki og rukkar meira fyrir 8 klukkutíma rútuferð heldur en hálftíma flug til Akureyrar. Líka sama fyrirtækið og tekur ekki á móti peningum í lausu (samkvæmt lögum er kaupmönnum skylt að taka við öllum gjaldmiðum sem eru viðurkenndir). Sama fyrirtæki og rukkar 500kr fyrir ferðina, þannig að 1km og 10km kostar það sama, á meðan aðrar strætó þjónustur eins og ÁS, SÍ og SVA svo eitthvað sé nefnt rukka 0kr fyrir 1km eða jafnvel 20km+. Skil stundum ekki afhverju kýs ennþá að búa í borginni þegar lífið útá landi er mun hagstæðara, mannvænna og allt í allt betra en í höfuðborginni.

Leave a Reply