Enn og aftur reynt að selja okkur einkarekna heilbrigðisþjónustu

3 comments
  1. Hef aldrei skilið þetta útspil hjá sjöllum, einkarekstur í heilbrigðisgeiranum er alveg einstaklega óvinsælt meðal landsmanna…

    Ef vinstri menn væru góðir í pólitík ættu þeir grimmt nota þetta í aðdraganda kosninga

  2. Það er náttúrulega í hagsmunum sjallahelvítana að reyna að einkavæða allt svo þeir geti svo skipt fallegri prósentu af árshagnaðinum á milli sín.

    Leyfa þessum helvítum að éta það sem úti frýs.

    Svo gengur reksturinn og fær niðrugreiðslu frá ríkinu, og þeir með sjálfstæð fyrirtæki á ríkisspena. Svo lamast Landsspítalinn vegna þess að hann getur ekki keppt launalega séð, og einkarekna spítalaruslið fær enn frekari peninga frá ríkinu sem greiðir, vísvitandi eða eigi, beina prósentu í arð til þessara helvíta.

    Fyrirgefið, það bara fokking sýður svo á mér við þetta. Þetta á aldrei að vera.

    Heilbrigðisiðnaðurinn á Íslandi á að vera rekinn af ríkinu. Hagnaður af rekstri, ef einhver er, skal fara aftur í ríkið til að standa undir landi voru. Í hreinskilni finnst mér að það sama ætti að eiga við varðandi menntun og uppeldi, amk leikskóla og grunnskóla.

Leave a Reply