Áhugaverð nálgun á kostnaði fasteignasala.

4 comments
  1. Ætti fólk ekki að fá borgað líka í samræmi við vinnuframlag ?

    (það er ansi langt milli þóknunar og tímavinnu hjá fasteignasölum virðist vera)

  2. Verð að viðurkenna að ég er mjög hrifinn af því hvernig þessi gæji er að dissa fasteignasala, eða amk markaðinn eins og hann er orðinn. 1100 kaupsamningar mánaðarlega sem þarf að halda uppi starfsstétt sem gróflega má meta að sé um 1100 líka. Einn samningur þarf ss að dekka mánaðarlaun eins starfsmanns og kostnaði.

    Þetta er auðvitað einföld nálgun en ég fíla hana samt! Það sem mér finnst reyndar vanta er: Hvað í ósköpunum fer restinn af mánuðinum í þegar að þessi ca. eini samningur á haus er lokinn? Væri til of mikils að ætla að þau gætu kannski gert tvo samninga á mánuði, fækkað stéttina um helming og þóknun um ca jafn mikið? Ókei kannski smá einfeldni, en það má nú alveg rugga við bátnum aðeins!

    Haukur, ef þú sérð þetta: Þú ert kúl

  3. Hreðjar í þessum manni, þúsundir fasteignasala sem eru búnir að vera mjólka þetta kerfi alltof lengi.

    Fasteignasalar stunda mikilvægt starf, en eins og Haukur hefur verið að benda á, þá eru þeir að sjúga milljarða úr almenningi sem eiga í raun ekki rétt á sér.

  4. Þetta er eins og bílaumboð líka, óþarfa milliliður sem er útrunninn. Hægt að hafa þetta í beinni netsölu með lágmarks álagningu (eða amk álagningu sem inniheldur ekki kostnað á þriðja aðila) eins og Tesla. Engin þjónusta sem þessi umboð bjóða sem er ekki hægt að afgreiða með hinu módelinu.

Leave a Reply