
Hér eru tvö mál sem ég las um í dag. Án þess að gera lítið úr kynferðisbrotum gegn börnum og allt það. Þá er farið fram á 2 milljónir fyrir að særa blygðunarsemi 12 ára stúlku með sms skilaboðum.
[https://www.dv.is/frettir/2022/9/13/sendi-ogedfelld-skilabod-12-ara-stulku-eg-mun-taka-thig-ur-buxunum-medan-thu-sefur/](https://www.dv.is/frettir/2022/9/13/sendi-ogedfelld-skilabod-12-ara-stulku-eg-mun-taka-thig-ur-buxunum-medan-thu-sefur/)
Þessi póstur er ekki gerður til að gera lítið úr því broti.
Hér er svo mál þar sem ráðist er á 45 ára gamlan mann með glerflösku með þeim afleiðingum að það þarf að sauma andlitið á honum saman. Þar er farið fram á 1.5 milljón í skaðabætur.
[https://www.dv.is/frettir/2022/9/13/hrottaleg-aras-storholti-andlitid-var-saumad-saman/](https://www.dv.is/frettir/2022/9/13/hrottaleg-aras-storholti-andlitid-var-saumad-saman/)
Er það bara mér sem finnst þetta skrítið?
3 comments
Ekkert skrýtið við þetta, skaðabætur eru metnar eftir tilfellum og reiða sig mest á upphæðina sem stefnandi fer fram á
Það er engin staðlaður prís fyrir afbrot í leiðbeiningunum
Mér finnst að skaðabætur ættu að svona almennt að byggja á því sem viðkomandi myndi vera líklegur til að samþykkja sem fyrirframgreiðslu.
Hvað myndir þú vilja sem upphæð ef þú værir að semja um atvikið fyrirfram.
Það er auðvitað einstaklingsmunur, en heilt yfir væri hægt að fá sanngjarnar upphæðir dæmdar sem skaðabætur ef að það væri bara notað slembiúrtak til að meta þetta.
Láta senda þér ljótt SMS, 50þ. Líklegt til að hætta ef það er upphæðin per SMS, annars væri ég sáttur með 500þ fyrir 10 stykki hvort sem er, bara keep them coming..
Ljótt ör í andlitið, kannski 150m, erfitt að segja til um hvernig það fer viðkomandi. Ég myndi líklega vilja meira, en það væri líklega hægt að finna eitthvað meðaltal.
Svo eru aðrir eflaust með aðrar tölur en það myndu líklega finnast meðaltöl sem væru í einhverju samræmi við glæpinn.
Held þetta sé byggt á hvort skaðinn er varanlegur, ef hann er það þá er horft á aldur tjónþola og skaðabæturnar reiknaðar eftir hvað viðkomandi á líklega eftir að lifa lengi með þessum skaða.
Svo mæla þeir einhvern vegin hversu líklegt er að skaðinn hafi áhrif á þig eða ekki. Erfitt að meta svona, myndi aldrei sækjast eftir þessu starfi.
Upphæðin sjálf sem farið er fram á er líklega byggð á öðrum viðlíka fordæmisgefandi málum.