Það er grátlegur munur á því að fara á neyðarmóttökuna þegar ég var í grunnskóla, og núna þegar ég er fullorðinn, og Ísland sjálft og allir Íslendingar eru búin að stórauðgast á þessum tíma.
Það er svo grátlegt að ég er tilbúinn að taka persónulegu pólitíkina mína út úr þessu og fullyrða að það er alveg hægt að reka skilvirkt og opið heilbrigðiskerfa undir frjálslyndum kapítalisma – við ákváðum bara, og ákveðum alla daga enn, að horfa upp á Ríkið hola það hægt og rólega að innan og auðvitað hefur það þessi áhrif.
Svo er kannski tækifæri til að minna yngra fólkið á að [Landssíminn var einkavæddur árið 1996](https://www.althingi.is/altext/132/s/0511.html), í óþökk meirihluta þjóðarinnar eins og oft vill gerast á Íslandi, með þeim loforðum að við fengum nýjan Landsspítala, og Sundabraut – hvorugt sem hefur klárast (en viðbygginging við Landsspítalan á vístað teljast með samkvæmt sumum). Það eina sem við fengum var dýrari símaþjónusta. Þessi “snilld” hefur verið að gerast þetta lengi.
Íslendingar þurfa að fara að mæta á austurvöll og krefjast umbóta heilbrigðiskerfisins.
Það vantar fleiri sjúkrarými, sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga, lækna. Það þarf að hafa bráðamóttöku geðsviðs opna 24/7. Í fullkomnum heimi væri bráðamóttakan, bráðamóttaka barna og bráðamóttaka geðsviðs ekki í sitthvorri byggingu, heldur saman af augljósum ástæðum. Þá þarf neyðarmóttakan fyrir þolendur kynferðisofbeldis einnig að fá umbætur, það má ekki viðgangast að þolendur þurfi, á einum versta degi lífs þeirra sem þeir jafnframt upplifa alla jafna mikla óverðskuldaða skömm og getur því verið fælandi að þurfa að vera fyrir framan annað fólk. Það þarf að laga bága akademíska stöðu spítalans, sem stafar af skorti heilbrigðisstarfsmanna þar sem ekki gefst tími fyrir þau mikilvægu og nauðsynlegu rannsóknarstörf sem fara fram.
Fólki er drullu sama um þetta vesen því að “þetta gerist sko ekki við mig eða mína”, en þetta bara fokking víst hefði getað verið þú eða ég, eða ástvinur. ÞAÐ ER EKKI NEITT FOKKING PLÁSS á þessari bráðamóttöku. Fólkið sem vinnur þarna eru bara ofurmenni og hafa náð að láta þetta springa ekki hingað til en nú stefnir í þrot.
Hvernig má það vera að heilbrigðiskerfinu á íslandi, bezta landi í heimi, eru svo örfá gjörgæslupláss?
“Við erum með í heildina hér á Reykjavíkursvæðinu á Landspítalanum fjórtán gjörgæslupláss, við erum með þrjú, fjögur gjörgæslupláss á Akureyri – þetta eru einu gjörgæsluplássin í landinu, sem þurfa að sinna öllum sjúklingahópum. Þannig að við höfum ekkert mikla getu og það er það sem málið snýst um.“ https://www.visir.is/g/20212179992d
Þannig að í þessu farsóttarástandi sem nú ríkir, er litið til stöðu þessa meingallaða, svokallaða “heilbrigðiskerfis” við ákvörðun þeirra takmarkana sem á að setja fólki.
Einhverntíman eftir nokkur ár mun sami hópur stjórnmálamanna sem olli þessu hruni, nota það sem afsökun fyrir einkavæðingu.
Á myndinni neðar í fréttinni erum við með svipað jafnmörg bráðasjúkrarými per íbúa og Danmörk. Og fleiri heldur en Svíþjóð, Ísrael og Kanada. Lönd sem eru talin vera með ein bestu heilbrigðiskerfi í heimi.
Hvað þýðir þetta?
Hrunið sést einnig á flótta námslækna úr sérnámi í lyflækningum yfir í aðrar greinar vegna lélegrar starfsaðstöðu, slæmra launa og engin fríðindi samanborið við aðrar stéttir.
Edit: eiginlega hægt að segja að fólk flykkist úr spítalagreinum yfir í heilsugæsluna
Ein fylking segir að það vanti meiri pening til að geta gert meira, hin fylkingin segir að við ættum að vera að fá meira fyrir þann pening sem við erum að ausa í þetta nú þegar.
Þá hlýtur í það minnsta að vera hægt að sammælast um að eyða meiri pening í umbætur til að auka skilvirknina.
Það var öllu lokað úti á landi sem hægt var að loka og vel það. Það er ekki hægt að koma eldri sjúklingum af sjúkrahúsum til öldrunar- og sjúkraheimila vegna þess að þau eru rekin þannig að það er bara gert ráð fyrir lágmarks umönnun og þau geta ekki séð um sjúklinga sem að fá jafnvel minnstu vandamál heldur henda þeim aftur til spítalans og neita að taka við einstaklingum með langvarandi veikindi.
Stóra dæmið er líka að heilsugæslukerfið er hrunið vegna álags fyrir löngu þannig að bráðamóttakan er notuð eins og heilsugæsla af því að annars ertu að fara að bíða í 2 vikur eftir lækni. Og bráðamóttakan er full af því að það er ekki hægt að koma fólki í burtu á aðrar deildir af því að þær eru fullar af öldruðum sjúklingum sem að er ekki hægt að koma í burtu.
Kerfið er svo ruglað og svo stíft gagnvart breytingum að maður sér þetta ekki breytast á næstu 10 árum frekar en 10 árin á undan.
Það þarf að nýta fjármagnið betur, alltof margir í yfirstjórn.
9 comments
Það er grátlegur munur á því að fara á neyðarmóttökuna þegar ég var í grunnskóla, og núna þegar ég er fullorðinn, og Ísland sjálft og allir Íslendingar eru búin að stórauðgast á þessum tíma.
Það er svo grátlegt að ég er tilbúinn að taka persónulegu pólitíkina mína út úr þessu og fullyrða að það er alveg hægt að reka skilvirkt og opið heilbrigðiskerfa undir frjálslyndum kapítalisma – við ákváðum bara, og ákveðum alla daga enn, að horfa upp á Ríkið hola það hægt og rólega að innan og auðvitað hefur það þessi áhrif.
Svo er kannski tækifæri til að minna yngra fólkið á að [Landssíminn var einkavæddur árið 1996](https://www.althingi.is/altext/132/s/0511.html), í óþökk meirihluta þjóðarinnar eins og oft vill gerast á Íslandi, með þeim loforðum að við fengum nýjan Landsspítala, og Sundabraut – hvorugt sem hefur klárast (en viðbygginging við Landsspítalan á vístað teljast með samkvæmt sumum). Það eina sem við fengum var dýrari símaþjónusta. Þessi “snilld” hefur verið að gerast þetta lengi.
Íslendingar þurfa að fara að mæta á austurvöll og krefjast umbóta heilbrigðiskerfisins.
Það vantar fleiri sjúkrarými, sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga, lækna. Það þarf að hafa bráðamóttöku geðsviðs opna 24/7. Í fullkomnum heimi væri bráðamóttakan, bráðamóttaka barna og bráðamóttaka geðsviðs ekki í sitthvorri byggingu, heldur saman af augljósum ástæðum. Þá þarf neyðarmóttakan fyrir þolendur kynferðisofbeldis einnig að fá umbætur, það má ekki viðgangast að þolendur þurfi, á einum versta degi lífs þeirra sem þeir jafnframt upplifa alla jafna mikla óverðskuldaða skömm og getur því verið fælandi að þurfa að vera fyrir framan annað fólk. Það þarf að laga bága akademíska stöðu spítalans, sem stafar af skorti heilbrigðisstarfsmanna þar sem ekki gefst tími fyrir þau mikilvægu og nauðsynlegu rannsóknarstörf sem fara fram.
https://stundin.is/grein/14266/bradamottaka-visadi-sjuklingi-i-hjartastoppi-fra/
Fólki er drullu sama um þetta vesen því að “þetta gerist sko ekki við mig eða mína”, en þetta bara fokking víst hefði getað verið þú eða ég, eða ástvinur. ÞAÐ ER EKKI NEITT FOKKING PLÁSS á þessari bráðamóttöku. Fólkið sem vinnur þarna eru bara ofurmenni og hafa náð að láta þetta springa ekki hingað til en nú stefnir í þrot.
https://www.ruv.is/frett/2021/09/29/sjuklingar-liggja-a-kaffistofu-starfsfolks
https://www.ruv.is/frett/2021/10/11/yfirkeyrt-starfsfolk-bradamottoku-lysir-haettuastandi
https://www.ruv.is/frett/2021/06/22/ihugadi-ad-haetta-eftir-fyrstu-vaktina-a-bradamottokunni
https://www.mannlif.is/frettir/neydarkall-fra-forstjora-landsspitala-starfsfolk-komi-ur-sumarleyfi/
https://www.visir.is/g/20212143242d Vaktstjórar segja neyðarástand ríkja á bráðamóttökunni
https://www.visir.is/g/20181538267d Segir ríkisstjórnina bera ábyrgð á neyðarástandinu sem ríkir á Landspítala
https://www.visir.is/g/2013711229997/vidreisn-landspitala-timinn-a-throtum
https://www.visir.is/g/2020811054d Segir fjárframlög til Landspítala ekki í samræmi við boðaða stórsókn í heilbrigðismálum
https://www.visir.is/g/2020200109256?fb_comment_id=3134785906537084_3135095359839472 Stjórn læknaráðs ályktar um ástandið á bráðamóttöku – “stórslys væri í uppsiglingu á bráðamóttökunni bregðist stjórnvöld ekki við.”
https://www.visir.is/g/20201102457d Notar orðin „fokking dísaster“ til að lýsa ástandinu á bráðamóttökunni
Þetta er bara alls ekki nýtt af nálinni… frétt frá 2008 https://www.visir.is/g/2008394981300/neydarastand-ad-skapast-a-landspitala-
https://www.visir.is/g/2017170209470/brugdist-vid-neydarastandi-med-thvi-ad-utskrifa-sjuklinga – Frétt frá 2017
https://www.visir.is/g/2019190918653/fjar-mala-rad-herra-visar-til-a-byrgdar-stjorn-enda-lands-pitala-og-heil-brigdis-radu-neytis
“Einhverjum öðrum en mér að kenna”
Hvernig má það vera að heilbrigðiskerfinu á íslandi, bezta landi í heimi, eru svo örfá gjörgæslupláss?
“Við erum með í heildina hér á Reykjavíkursvæðinu á Landspítalanum fjórtán gjörgæslupláss, við erum með þrjú, fjögur gjörgæslupláss á Akureyri – þetta eru einu gjörgæsluplássin í landinu, sem þurfa að sinna öllum sjúklingahópum. Þannig að við höfum ekkert mikla getu og það er það sem málið snýst um.“
https://www.visir.is/g/20212179992d
Þannig að í þessu farsóttarástandi sem nú ríkir, er litið til stöðu þessa meingallaða, svokallaða “heilbrigðiskerfis” við ákvörðun þeirra takmarkana sem á að setja fólki.
https://www.ruv.is/frett/2021/10/15/edlilegt-ad-horfa-til-stodunnar-a-spitalanum
Geggjað.
Einhverntíman eftir nokkur ár mun sami hópur stjórnmálamanna sem olli þessu hruni, nota það sem afsökun fyrir einkavæðingu.
Á myndinni neðar í fréttinni erum við með svipað jafnmörg bráðasjúkrarými per íbúa og Danmörk. Og fleiri heldur en Svíþjóð, Ísrael og Kanada. Lönd sem eru talin vera með ein bestu heilbrigðiskerfi í heimi.
Hvað þýðir þetta?
Hrunið sést einnig á flótta námslækna úr sérnámi í lyflækningum yfir í aðrar greinar vegna lélegrar starfsaðstöðu, slæmra launa og engin fríðindi samanborið við aðrar stéttir.
Edit: eiginlega hægt að segja að fólk flykkist úr spítalagreinum yfir í heilsugæsluna
Ein fylking segir að það vanti meiri pening til að geta gert meira, hin fylkingin segir að við ættum að vera að fá meira fyrir þann pening sem við erum að ausa í þetta nú þegar.
Þá hlýtur í það minnsta að vera hægt að sammælast um að eyða meiri pening í umbætur til að auka skilvirknina.
Smá viðbót:
https://hringbraut.frettabladid.is/frettir-pistlar/thorir-laeknir-svarar-bubba-spitalinn-var-smekkpakkadur-fyrir-thessa-bylgju/