Er ég sá eini sem er fullþreyttur á blætishættinum sem útlendingar eru með á þessum manni?

12 comments
  1. Ég verð að viðurkenna að ég hugsa ekki nóg um þennan mann til að pirra mig á hlutum tengdum honum.

    Ég á það til að skauta framhjá fréttum um hann því að mér er eiginlega bara alveg sama um það sem hann gerir í sínu lífi.

  2. Það er fullkomlega eðlilegt að einn sterkasti maður allra tíma, sem er þar að auki leikari í einum vinsælasta sjónvarpsþætti allra tíma, skuli njóta athygli erlendis. Það sem er skrítnara er hversu litla athygli hann nýtur hérlendis. Að okkar helsti íþróttamaður síðari ára skuli vera hunsaður af verðlaunaafhendingum eins og Íþróttamaður Ársins er hlægilegt og í raun ógildir slíka keppni. Að Hafþór skuli ekki hafa hlotið þau verðlaun árið 2018, þegar hann varð fyrstur til að vinna fyrsta sæti á WSM, ESM, og Arnolds Classic á sama ári, er óskiljanlegt.

    Hafþór er einstakur íþróttamaður og á skilið alla þá athygli sem hann fær erlendis, sem og mun meiri viðurkenningu af landsmönnum sínum.

  3. Hehe hann er 205cm en hún er bara 157 og hann heldur að það sé góð hugmynd að vera að eignast krakka með henni ég meina hann er svo góður vegna stærðar sinnar og ef afkvæmin hans fá það ekki þá er hann soldið búinn að fokka þeim hvað það varðar ekki satt? Just saying…

  4. Örugglega ekki. One born every minute after all. Persónulega hef eg hátt álit á honum og hef þekkt hann í að verða áratug.

  5. Þessi maður er meistari og hefur gert meira fyrir land og þjóð enn þú mun nokkuð timan gera 🤣 ofmetin? Nei. Öfundar fólk hann? Ja 💪

Leave a Reply