Gott að muna í umræðunni í dag að það er margt mjög gott á Íslandi varðandi jafnrétti og samskipti kynjanna. “WPS Index (2021). The index is based on data that measures women’s inclusion, justice access, and security in 170 countries.”

13 comments
  1. Þetta er samt bara listi yfir “hvar er best að vera” óháð kyni.

    Ég gæti búið til sama lista yfir fyrir jafnrétti, réttaraðgang og öryggi fyrir örvhenta og myndi komast að nákvæmlega sömu niðurstöðu

  2. Nei þetta er ekki gott mótsvar við umræðunni. Þetta eru gagnlegar upplýsingar einar og sér, en dónalegt andsvar við umkvörtunum fólks.

    Þegar ég var lítill og vildi ekki borða matinn minn minnti fullorðna fólkið mann oft á svöngu börnin í afríku. Það örvaði ekki matarlystina, gerði samt lítið úr lystarleysi mínu. Það gerði sumsé íllt verra.

    Að segja frá kostum lands er gott. Andsvar við umræðu um vandamál kynjanna sem fyrirfinnast á heimsvísu? Ekki gott. Konur eiga ekki að þurfa að vera þakklátar fyrir að búa í afganistan. Þær mega vera það, en ekki út af því að some dude var sð reyna að setja ofan i þær.

    Það er víða pottur brotinn í umræðunni, og margt frekar fáránlegt við það samtal, og það er stundum þrúgandi að vera strákur og geta aldrei átt rétt á rödd og jafna stöðu við samningaborð hins opinbera samtals. Eina speisið er fyrir hrokagikka og dudebros, og gaura sem eru alltaf sammála og aldrei óþægilegir.

    En það er staðan. Kúltúrinn. Gagnvart einstaklingnum, þá er svona andsvar samt alltaf útúrsnúningur.

  3. Samkvæmt vefsíðunni fór Ísland NIÐUR og allt fyrir ofan fór upp… Gæti Ísland hafa verið í fyrsta sæti einu sinni?

  4. Já okkur hefur gengið mjög vel, þessvegna er full ástæða til að halda áfram að gera vel af fullum krafti og ekki gefast upp. Maður hættir ekki að elta boltan þó maður sé 2-0 yfir.

  5. >”Já, einhver eitraði fyrir þér á skemmtistað til að nauðga þér, en góðu fréttirnar eru að við erum .644 stigum fyrir ofan Afganistan á heimsmælikvarða”

  6. hmm, ég sá nú á twitter um daginn einhvern segja að Íslenskir karlmenn væru ekkert skárri en Talibanar, svo þetta getur nú varla staðist 😉

  7. Við vorum 1 í jafnrétti.
    Ég er samnt mjög stoltur af Íslandi að hafa þetta svo gott (þó að það má en bæta og við ættum að stefna að því)

    Svo er mikilvægara að vera altaf að reyna finna hvað er að í smfélæginu og bæta það.
    En líka gott Að skoða hvað gengur vel.

Leave a Reply