Vilja endurvekja hefðbundinn arkitektúr – Efna til kosninga um fallegustu og ljótustu nýbygginguna

9 comments
  1. Kjánaskapur og íhaldsemi að vilja byggja bara í “gamldags stíl”.

    Ég er kannski einn um það en mér finnst td. nýji miðbærinn á Selfossi Disneylegur og ljótur, allir áratugir eiga ljót og umdeild hús og þá sérstaklega seinni part níundar og byrjun tíundar áratug(80’s&90’s).
    Gott dæmi til að sjá getið þið prufið að keyra Ármlan og Síðumúlan þá sáið þið strax að þetta eru hús reyst á ca. 80-90 en ef þeið farið svo niðrí Borgartún þá sjáið þið strax að hann er byggður* í kringum ca. 00-10 (*endur byggður)
    IMO arkitektúr á að endurspegla samtímann en ekki halda í einhverjar gamlar hugmyndir sem voru líka umdeildar á sínum tíma. Td. Hús Háskóla íslands var umdeilt þegar það var reyst og þótti það stórt og klunnalegt en ég efast um að nokkur maður í dag mundi segja þetta um skólan í dag.

    En svo er önnur pæling á tíu hæða glerturn heima í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavík eða eiga arkitektar að taka tillit umhverfisins og teikna byggingar í nútíma stíl í takt við umhverfið, ég er meira á þeirri skoðun.
    Mér finnst Ís­lands­bankareiturinn á lækjagötu vel heppnað dæmi um húsnæði byggt í takt við umhverfið.

  2. Frábært. Það er kominn tími til að almenningur hafi meira að segja um þennan skelfilega arkítektúr sem hefur verið leyft að raungerast í Reykjavík á síðustu árum.

    Mér finnst að verktakar/arkítektar hljóti að þurfa að starfa í umboði almennings. Ef það sem er verið að byggja mun taka pláss í almannarýminu næstu áratugi á fólkið sem þarf að labba framhjá að hafa eitthvað um málið að segja.

  3. mér finnst ađ ríki og sveitarfélög eigi ađ hugsa ađallega um praktíska hluti eins og kostnađ , hversu vel húsiđ nýtist og mögulegt viđhald og svoleiđis hluti frekar en útlit í þeirra byggingum. hvernig einkaađilar láta hanna sín hús er mér allveg sama um

  4. Ég skil stemmninguna á Íslandi mikið betur núna þegar ég sé hvað það er stór hópur sem bókstaflega gengur um göturnar og pirrar sig á því hvernig húsin eru í laginu.

    Sjálfur er ég bara þakklátur fyrir að hafa þak yfir höfuðið. Ef það að hafa húsið “ljótara” lækkar verðið fyrir kaupendur og leigjendur þá styð ég það, annars er mér sama.

  5. Mér finnst meira vera kominn tími til að Íslendingar fari að slíta sig frá miðbænum. Ef fólk myndi huga að því að gera sitt eigið hverfi skrautlegra væri þetta ekkert vandamál..

Leave a Reply