
Heimspekiprófessor ræðir feðraveldið, slaufunarmenningu og íslenska samræðuhefð í Kastljósi — Sjáðu viðtalið!
Heimspekiprófessor ræðir feðraveldið, slaufunarmenningu og íslenska samræðuhefð í Kastljósi — Sjáðu viðtalið! from Iceland

Heimspekiprófessor ræðir feðraveldið, slaufunarmenningu og íslenska samræðuhefð í Kastljósi — Sjáðu viðtalið!
Heimspekiprófessor ræðir feðraveldið, slaufunarmenningu og íslenska samræðuhefð í Kastljósi — Sjáðu viðtalið! from Iceland
8 comments
Kannski er ég bara svona óttalega heimskur og illa menntaður en ég get ekki fyrir mitt litla líf tekið svona feðraveldisumræðu af neinni alvöru. Mér finnst hún alltaf vera svo ótrúlega ónhnitmiðuð og meira að segja hér finnst mér þessi prófessor ekki að ná mér, “karlar eru svona kúgaðir, af hver öðrum, valdið sko, og ekki hugrakka kynið” ég veit ekki. Horfa á þetta betur í kvöld
Restin fannst áhugaverðari, sérstaklega endirinn um samfélagsmiðla og samskipti.
Er einhver með tl;dw?
Ok, fyrst að heimspekiprófessorinn vill skoðun venjulegs karlmanns, sem venjulegur karlmaður hér er mín skoðun.
Þórir var fáviti að senda myndir af sér á ókunnugar stúlkur sem hann vissi ekki einusinni hvað voru gamlar.
Stelpurnar höfðu fullan rétt að segja frá sinni reynslu.
Leikhúsin höfðu fullan rétt að sleppa að ráða gaur sem hagar sér eins og fáviti.
Þórir má alveg fara í viðtal ef hann vill auglýsa hversu mikill fáviti hann er.
Fólk má alveg gagnrýna hann fyrir að fara í viðtal til að vekja athygli á fávitaskap sínum og benda honum á að fara í viðtalið er annað merki um fávitaskap.
eitt upvote og 31 ummæli, þetta verður áhugavert
Ég sé í kommentunum að sumir eru að glíma við hugtakið “Feðraveldið” og eru kanski komnir í enhverja vörn þá mæli ég endilega með að menn kíkji á r/MensLib
Þetta er hreyfing sem rýnir í hið hefðbundna karlahlutverk út frá sjónarhóli aðra karlmanna
Smá side note kannski: Mikið til í umræðunni um feðraveldið, en mér finnst erfitt að tengja við sumt sem er sagt þegar staðreyndin er sú að það eru fullt af konum í leiðtoga stöðum út um allt (sem betur fer) og oft (t.d. Þar sem ég er að vinna) fleiri enn karlar.
Því meira sem barist er á móti “feðraveldinu” og því meira sem er barist gegn gamaldags og hefðbundnum hugmyndum um hvað það þýðir að vera karlmaður því fleiri perra fáum við og því fleiri óumbeðnar typpamyndir eru sendar. Ofbeldi gagnvart konum á Íslandi hefur farið hækkandi þrátt fyrir síaukandi sigra gegn “feðraveldinu”. Lausnin er sterkari feður og karlmenn sem fyrirmyndir fyrir syni sína og andstaða gagnvart siðferðilegri hnignun og klámvæðingu, þar á meðal “kvenneflandi” markaðsvæðingu á líkömum kvenna, *WAP*, *Onlyfans*.
Samkvæmt minni reynslu, og reynslu margra annarra, því meira sem ákveðinn karlmaður auglýsir að hans skoðanir eru í samræmi við fjölmiðla- og kerfissamþykktu skoðanir á feminisma, karlmennsku og kyni, því hærri líkurnar á því að hann sé perri og eða jafnvel kynferðisafbrotamaður.
Fíla svona viðtöl sem eru basically:
Spyrill: [Löng, ítarleg spurning sem lætur þig aðeins missa þráðinn og gleyma hvernig hann byrjaði]
Svarandi: Ok ég ætla ekki beint að svara þér, en hérna er hitt og þetta sem mér datt í hug áðan …