Ég veit ekkert um þetta mál, og engin deili á þessum manni. Ég veit ekki hvort það sé fólk þarna úti sem sjái hann sem geranda í sínu lífi eða ekki. Ég get ekki tekið afstöðu til einstakra mála sem ég veit ekkert um, og vill engan móðga eða gera lítið úr upplifunum þeirra.
Það er samt gott að við tölum um afleiðingarnar á “hinni hlið” málsins. Það er samt ekki gert til að gera lítið úr upplifunum fórnarlamba – en þetta eru aðrar afleiðingar á því að dómskerfið bregðist fórnarlömbum aftur og aftur þegar það kemur að þessum málum. Þetta er algerlega “dómstóll götunnar” að verki, ef svo má að orði komast – dómstóll götunnar eru bara viðbrögð þjóðfélagsins við því sem gerist í þjóðfélaginu – fólk kallar þessi viðbrögð nornaveiðar, eða þunga ábyrgðartilfinningu, eftir skoðunum sínum.
Svo ég endurtek – ég veit ekkert um þennan mann, og ég veit ekkert um hans mál. En ég veit ég bý í þjóðfélagi þar sem kynferðisafbrotamenn ganga lausir, og ég veit það hefur áhrif á fleirri þjóðfélagsþætti en bara bein áhrif verknaðarins á fórnarlömbin sjálf.
Kerfið er að bregðast og það mun ekki hætta því fyrr en við þekkjum vandamálið. Á meðan það sinnir ekki hlutverki sínu, þá mun almenningur sjá um að verja sjálfan sig eftir sinni bestu getu. Hugsanlega getur þessi saga hjálpað einhverjum okkar, sem ekki geta sett sig í spor fórnarlamba því það geta það ekki allir, til þess að þekkja vandamálið frá öðum sjónarhóli?
Er enginn búinn að benda þessum gæja á að þú getur beðið Google um að gleyma þér og koma ekki upp á leitarvélum?
Ég horfði á viðtalið í gær og það sem stendur upp úr:
Málið er bara kannað frá einni hlið.
Hin hliðin einfaldlega neitaði að taka þátt, sem vekur spurningar. Meina, þessi umræða er í fullum gangi í dag.
Hann, með svo þetta á sér, þylur upp hinar og þessar vinnur sem hann hefur verið að sækja um.
Ég tók eftir því að það voru flestallt einhverskonar umönnunarstörf (leiðbeinandi, skutla fötluðum og svona).
Maður spyr sig.
Hann er með meirapróf. Hann getur farið að keyra vörubíl. Hann er með lappir, hann getur farið að vinna hjá t.d. Póstinum. Hlaðmaður á Rvk flugvelli eða eitthvað áíka. En hann telur bara upp umönnunarstörf.
Það er soldið spes.
Þessi Zen Gylfi Sig twitter account dót er ekki alveg að gefa mynd af heilsteyptum manni. Hænan eða eggið.
Svo líka bara aftur. Umfjöllunin var bara einhliða.
Það hlýtur að liggja eitthvað meira að baki, tala þá ekki um þetta að hann fær vinnur og missir hana svo mjög fljótlega. Það er skrítið pattern og spurning hvort það megi alltaf rekja það til þessa eins atviks, eða hvort það sé eitthvað í hans eigin háttalagi sem veldur?
Mætti ætla að það sé búið að Gúggla hann áður en maðurinn er ráðinn?
Fannst þetta allt voða spes.
Er þetta bara dómstöll götunnar eða liggur eitthvað meira að baki?
Kaupi þetta ekki, það eru fyrirtæki að flytja inn verkafólk erlendis frá og hýsa það í iðnaðarhúsnæði. Það er fullt af fyrirtækjum sem spá ekki í ferilskrá eða mannorði þeirra sem sækja um einfaldlega því það vantar fólk.
Ég spái stundum í því hvert þessir dónakarlar sem einu sinni voru að vinna “virðuleg störf” fóru eftir að það komst upp um þá. Ég gæti trúað því að fyrir marga sé hugmyndin um að fara úr því að vera í framandi stjórnarstarfi eða verandi frægur leikari yfir í það að vinna þjónustustörf mun óþæginlegri fyrir stoltið heldur en það að það komist upp um mann og missa t.d. konuna og húsið sitt.
Ætla ekki að kommenta á þennan gæja eða hanns atvinnumál, en Kveikur er rannsóknarfréttaþáttur og svona viðtöl eru algjörlega hluti af því. Það er ekki hægt að úthúða slíkum þætti fyrir að taka viðtal við einhvern sem okkur líkar ekki, það er hluti af hlutverki hans.
Ef þið ætlið að skjóta á einhvern skjótið þá þennan typpamyndakall, ekki sendiboðann.
Er sammála flestum hér um að mér finnst ekki nóg hafa komið fram í fréttinni. Hvers vegna var honum sagt upp í öllum þessum störfum? Sótti hann bara um umönnunarstörf? Það er bara afskaplega eðlilegt að einhver sem hefur nokkurn tíma sent börnum kynferðislegt myndefni fái ekki að starfa á því sviði. Ekki sem bílstjóri, ekki sem ræstitæknir… Ekkert nálægt umönnun.
Ef satt reynist að hann fái enga vinnu af nokkru tagi vegna þessarar einu myndasendingar og einskis annars þá er eitthvað alvarlegt að samfélaginu. En ef það er vegna þess að hann er ýmsum öðrum slæmum göllum gæddur (hrokafullur, erfitt að starfa með honum, fleiri kynferðisbrot, ógnandi hegðun…) þá er það bara fullkomlega eðlilegt.
Hann þarf eiginlega sjálfur að senda tölvupósta út til sinna fyrrverandi vinnuveitenda og fá hreint svar hvers vegna honum var sagt upp störfum. Það væri síðan hægt að hafa samband við þessa vinnuveitendur og fá svarið staðfest. Að öðru leiti er ómögulegt að segja fyrir víst, svona úr sófanum heima, hvers vegna hann tollir ekki í starfi.
Trui honum ekki, gerendur ljuga stöðugt
Nú spyr ég eins og fífl. Er eitthvað í lögum sem bannar það að senda svona myndir á einstaklinga sem eru skv. lögum nógu gamlir til að stunda kynlíf? Þ.e.a.s. 15 ára og eldri.
Svo er spurning hvað við viljum að gerist i framhaldi af svona málum. Hér var skilst mér enginn dómur (klisja, ég veit), gæjinn hefur ekki setið inni eftir þvi sem ég veit best. Myndi öllum liða betur ef hann myndi sitja inni i smá tima? Fengi hann frekar vinnu eftir það? Eru ákveðin störf sem að menn sem hafa einhverntimann sent typpamyndir ættu aldrei að fá að vinna? Er til eitthvað stig iðrunar sem hann gæti synt sem myndi veita honum aflausn frá syndum sinum og fyrirgefningu samfélagsins? Hver er réttlát refsing?
Er ekki að reyna að afsaka það sem maðurinn gerði, og ég er ekki með svörin við spurningunum. Þetta eru bara vangaveltur sem vöknuðu hjá mér eftir að hafa lesið um þetta.
Við erum ennþá að vinna i þvi að læra nyjar leikreglur eftir #metoo. Lögin og reglurnar sem til eru virðast ekki vera að ná að endurspegla tiðarandann, og kerfið vinnur of hægt.
Ég held að þó að það megi gagnryna gerð þáttarins og manninn og sögu hans þá sé jákvætt að við séum að ræða þetta og veltum aðeins fyrir okkur hvað við viljum að gerist eftir kynferðisbrotamál þar sem enginn dómur fellur.
Bjánalegt að reyna að verða strætóstjóri, þeir eru með kröfu um engin kynferðisbrot eins og ég skil það
þessu gæji ætti bara að fara aka vörubílum eða eitthvað álíka
Þarft að vera algjer auli til að fá ekki vinnu núna líka, atvinnulífið á fullu og atvinnuleysi mjög neðarlega. Skil það að hann átti erfitt með þetta síðastliðin 2 ár í covid en þessi bjáni hefði átt að þegja og hefði getað reddað sér starfi bráðlega. Hann er bara kominn aftur í sviðsljósið núna, dumbass gaur
12 comments

https://support.google.com/legal/answer/10769224?hl=en
“Ég er ekki svona maður sem sendir typpamyndir”
-Maður sem sendir typpamyndir.

Jæja, þetta tók ekki langan tíma:
https://www.visir.is/g/20212178414d/ung-kona-um-sam-skipti-sin-vid-thori-sae-munds-son-thegar-hun-var-16-ara-ekki-bara-helmingi-eldri-en-eg-heldur-lika-fraegur-leikari-