Áróður fyrir mjólkurneyslu af hendi stórfyrirtækis

8 comments
  1. Banna svona, fyrirtæki eiga ekki að hafa aðgang að grunnskólum, alveg sama hver afsökunin er.

  2. Það sem gerir þetta ennþá verra er hversu mengandi mjólkurframleiðsla er. Þetta er ein óumhverfisvænasta framleiðsla sem til er og við stundum þetta í massavís. En auðvitað má ekki tala um þetta á Íslandi (aka MSlandi).

    Til þess að setja þetta í samhengi þá er **mjólkurframleiðsla 2x stærri CO2 valdur en öll farþegaflug í heiminum samanlagt**. (3.4% af heildinni vs 1.5%) Heimildir: [skýrsla SÞ](https://www.fao.org/3/CA2929EN/ca2929en.pdf), [grein BBC](https://www.bbc.com/future/article/20201208-climate-change-can-dairy-farming-become-sustainable), [gögn frá OWID](https://ourworldindata.org/emissions-by-sector).

    Að banna öll farþegaflug það sem eftir er hefur jafnmikil áhrif og að minnka mjólkurneyslu um helming. Fyrir marga er þetta að drekka eitt mjólkurglas í stað tveggja og borða skyr bara um helgar.

    Hugsið um þetta næst þegar þið farið út í búð á rafmagnbílnum ykkar eftir að hafa hætt við utanlandsferðina.

  3. >Eyrún Gísladóttir, móðir og grænkeri,

    Ef ég skyldi einhverntíma lenda í fréttunum væri það mín heitasta ósk að fá meira spennandi titil en þetta.

  4. Krakkar þið VERÐIÐ að drekka allavega tvö mjólkurglös á dag!

    Annars fáið þið ekkert kalk!

    Viljið þið að tennurnar á ykkur rotni og öll bein í líkamanum á ykkur brotni!?

    Nei, hélt ekki. Drekktu helvítis mjólkina okkar.

  5. Alveg óháð restinni af þessari grein, þá er ég orðinn hundleiður á “við erum eina dýrategundin sem drekkur mjólk úr öðrum dýrum” rökunum. Við erum eina dýrategundin sem býr til flugvélar líka, það er enginn að segja að við ættum að hætta því. Við erum eina dýrategundin sem gerir mjög, mjög margt ef út í það er farið.

Leave a Reply