Grunur um tengsl við norræna hægri öfgahópa

6 comments
  1. “Mennirnir sem taldir eru af lögreglu hafa haft í undirbúningi hryðjuverkaárás á Íslandi eru taldir hafa tengsl við hægri öfgahópa á hinum Norðurlöndunum, samkvæmt upplýsingum Stundarinnar.

    Lögreglan vildi ekki svara spurningum um það á blaðamannafundi sem fram fór fyrr í dag þar sem hún greindi frá því að fjórir karlmenn á þrítugsaldri hefðu verið handteknir í aðgerðum ríkislögreglustjóra í gær.

    Mennirnir eru grunaðir um að hafa haft í hyggju að fremja hryðjuverk hér á landi, að því er fram kom á fundinum. Heimildir Stundarinnar herma að til rannsóknar séu möguleg tengsl þessara sömu manna við öfgahópa á Norðurlöndunum sem og annars staðar í Evrópu.

    Samkvæmt öðrum heimildum telur lögreglan líkur á að árásin hafi fyrst og síðast átt að beinast að lögreglunni sjálfri. Það er í samræmi við það sem fram kom á fundinum um að grunur lögreglu sé sá að árásin hafi beinst að „stofnunum samfélagsins“.

    Þá hefur Stundin heimildir fyrir því að töluverður hluti vopnanna sem gerð voru upptæk í gær hafi verið flutt til landsins. Þar á meðal fjöldi hálfsjálfvirkra vopna, sem eru byssur sem geta skotið mörgum skotum á stuttum tíma án þess að þurfa að hlaða vopnið á milli skota.”

  2. Smá hliðarspor en hvað er átt við með “hægri”?

    Eru þessir hópar á móti almenningssamgöngum? Eða eru þeir að berjast fyrir einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu?

  3. hef oft pælt í því hvernig væri bezt að sprengja upp Valhöll á sem bestan hátt, vissi ekki að það væru annað fólk á Íslandi pælandi í sumum hlutum og væru að gera eitthvað (kannski ekki gegn hægristjórninni) út úr því

Leave a Reply