Um 400 vilja vera í félagi fyrir smærri fyrirtæki

4 comments
  1. Þetta er liðið sem að er að fara að sprengja í loft upp hugsanlega 1 árs framlengingu á hóflegri útgáfu lífskjarasamningsins sem að meirihlutinn í SA vill halda í til að tryggja stöðugleika út 2022-2023 á meðan það er verið að bíða eftir að sjá hvort að verðbólga og allt fari til fjandans eða ekki.

    Þetta er liðið sem að vill æsa ASÍ og VR upp í slagsmál, verkföll og vesen.

    Þetta er langt í frá að vera rétti tíminn í svoleiðis. Sérstaklega þegar ASÍ og SA eru eiginlega sammála um að ríkið sé ekki að standa sig og eru að vinna saman að því að setja pressu á Seðlabankann og ríkið varðandi næstu skref.

    Ég skil alveg pointið en ég held að þetta sé svo sannarlega ekki tíminn.

  2. Samtök Atvinnulífsins eru mjög spes batterí þegar kemur að kjarasamningsgerð.

    Gott dæmi um það er nýjasti kjarasamningur SA og Rafiðnaðarsambandsins. Þau fyrirtæki sem gátu tekið þátt í því er hægt að telja á fingrum annarrar hendi. Yfir 80% meðlima Rafís eru óánægðir með þann samning.

    Það eru óteljandi fyrirtæki sem eru ósátt með það að hafa ekkert vægi í einu eða neinu þegar það kemur að kjaramálum, og kemur það líka starfsólkinu við þar sem nýir samningar eins og þeir síðustu eru oft ekki jafn árangursríkir fyrir starfsfólk lítillra fyrirtækja.

    Fyrirtæki sem ég starfaði hjá (20-25 manns) ræddi það að launakostnaður hækkaði um lítið sem ekki neitt við síðasta samning, í samanburði við fyrri samninga þ.e.a.s.

    Óháð Simma Vill, þá skil ég það fullkomnlega að minni fyrirtæki vilja geta látið í sér heyra.

  3. Þegar ég sá að Simmi var einn af stofnendunum þá grunaði mig að þetta væri eitthvað drulludæmi. Mig sýnist þetta vers hópur af fólki sem kvartar iðulega yfir því að þurfa að borga mannsæmandi laun.

Leave a Reply