
ég bý niðrí bæ og get labbað í bónus sem er rosa fínt, en ef ég kaupi mikið þá er svolítið þungt að bera mikið af dóti í 8 min. ég var að spá í að kaupa mér einhvernskonar kerru til að taka með mér. ég var að spá í einhverjari eins og þær sem krarrar í úthverfum í bandarískum þáttum og bíómyndum eru oft með sem lítur út einhvað svona https://i.imgur.com/Kgl0O10.png
hef aldrey séð svona hér samt. gæti líka notað barnavagn en það væri kanski smá skrítið
hvað mynduð þið leggja með og hvar getur maður keypt það?
11 comments
Hjólbörur. 10k í Bauhaus.
Ferðataska á hjólum?
Ikea hefur áður verið með kerru/poka á hjóluum með útdraganlegu handfangi, (hægt að brjóta fínt saman ef maður fer í strætó á undan búðarferðinni)
Við konan keyptum svona þegar við vorum bíllaus og það var magnað hversu mikið komst í!
Á timabili var eg með svona ömmukerru fyrir innkaupin mín. (Eins og þessi https://th.is/vara/andersen-7/)
Núna er ég með ferðabakpoka, það er ótrúlegt hvað þeir dreifa þunganum vel en ég er líka heppin að búðin er hliðin á vinnunni svo ég get farið margar minni ferðir.
Googlaðu innkaupataska á hjólum
Hef oft horft á svona vagn í annaðhvort Costco eða Bauhaus (man bara ekki hvort) og langað til að kaupa mér, en ekki náð að réttlæta það alveg fyrir mér.
[Costco hefur allavega verið með svona vagna](https://www.costco.co.uk/Sports-Spas-Leisure/Camping/Camping-Equipment/Tofasco-Folding-Wagon/p/1650050) en maður veit í rauninni ekki hvort þeir séu til eða ekki. Bara kíkja þangað 🙂
[Hér er ein frá Ikea](https://www.ikea.is/products/609495), uppseld í augnablikinu samt
Hef séð svona í Costco. Veit ekki hvort það sé til í augnablikinu en það kemur alltaf með vorinu.
Geturu ekki bara látið 3D prenta þessa frábæru mynd?
Þú þarft radio flyer
Stela bónuskerru?
Svo er spurning hvað budgetið er, ef þú átt reiðhjól þá gætiru keypt vagn aftaní. Það eru til cargo vagnar, ekki bara barnavagnar