
Ég var að kaupa íbúð sem ég þarf að leigja út í 10mán einfaldlega vegna þess ég er sjálfur að leigja húsnæði með tímabundnum leigusamningi sem ég get ekki sagt upp.
En svo rak ég augun í [þetta](https://i.imgur.com/Q1a4nRF.jpg) á heimasíðu Arion banka.
Er þetta einhvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af ef ég ætla að leigja íbúðina út fyrstu 10 mánuðina ?
Ég hef aldrei heyrt um að bankar vilji ekki lána fyrir íbúðum sem fara í útleigu, hef heyrt um svo mikið af fólki sem kaupir íbúð og setur hana strax á leigu og heldur sjálft áfram að búa í foreldrahúsum, er bankinn kannski ekkert að fara skipta sér af þessu nema ef maður er einhvað stórtækur í þessu að og er að kaupa margar eignir ?
Er mér óhætt að leigja hana út og þinglýsa samningnum ?
Edit: Takk fyrir svörin, ég hef þá ekki meiri áhyggjur af þessu.
7 comments
Ég keypti íbúð núna fyrir 11 mánuðum og þá sagði konan í bankanum við mig að opinbera stefnan þeirra sé ekki að gefa lán fyrir leiguíbúðir en þau líta soldið framhjá þessu. Sagði að þau skilja stöðu og erfiðleika þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn og eru ekki að fara fiffa sér of mikið upp úr þessu svo lengi sem þú leigir íbúðina út ekki of lengi.
Myndi persónulega ekki hafa miklar áhyggjur af þessu.
Formlega þá vilja bankarnir ekki lána þér *íbúðalán* fyrir fasteign til útleigu, heldur einhverja aðra tegund af láni. Til frekari skýringar: öll útlán hjá þeim eru mismunandi tegundir af vörum sem þeir eru að reyna selja – íbúðalán er bara ein tegund af vöru, sem þeir skilgreina þannig að það séu veðlán fyrir fólk til að koma þaki yfir höfuðið á sér og eignast heimili. Þess vegna eru útlánavextir á slíkum lánum almennt lægri en á nærri öllum öðrum lánum. Ef þú ætlar að fá lán til að kaupa fasteign til útleigu, þá skilgreinir bankinn þetta sem einhvers konar atvinnustarfsemi og vill þess vegna selja þér öðruvísi tegund af láni, með vaxtaálagi, þ.e.a.s. hærri vöxtum, af því að bankinn vill fá skerf af hagnaðinum af leigunni.
Fólk er samt alveg að taka íbúðalán í svona tilvikum. Bankinn er ekki að fara yfirheyra þig um hvort þú ætlir ekki örugglega að búa sjálfur í eigninni og alls ekki leigja hana út – myndi bara sleppa því að nefna það við bankann. Í fljótu bragði dettur mér helst í hug að þetta gæti orðið eitthvað vesen ef þú annað hvort treystir á væntanlegar leigutekjur til að standast greiðslumat, eða treystir á útgreiðslu úr viðbótarlífeyri til að eiga fyrir útborguninni.
Ef þú borgar af láninu þá er þeim drullusama.
Bankinn á að gera undantekningu þarsem að þú ert að leigja húsnæði.
​
Ríkið gefur undanþágu af sköttum fyrir fólk sem er í þessari aðstöðu og ég myndi bara sækja um lán og gera allt sem þarf að gera án þess að láta bankann vita.
Ég var einmitt að skrifa undir lán hjá Arion og var í sömu pælingum og þú. Í smáa letrinu áskildu þeir sér rétt til að hækka vexti á láninu um 1% ef þú hefur ekki lögheimili í nýju íbúðinni. Hvort þeir athugi það yfir höfuð veit ég ekki.
Kannski ekki beint tengt þessu en passaðu þig bara að eiga pening þegar að skil á skattaskýrsludótinu kemur, það er dýrt að leigja út og þú færð alveg ágætis reikning frá skattinum
Slepptu því bara að segja þeim frá þessu, og mundu að flytja lögheimilið þitt í hana (annars getur Arion hækkað vextina – það stendur amk í skilmálunum á skuldabréfunum þeirra). Getur sagt með hreinni samvisku að hún sé til eigin nota, enda ætlar þú að flytja í hana (bara ekki alveg strax).