Sæl öll,

Var að skoða fréttirnar og var að lesa þessa [frétt](https://www.visir.is/g/20212163051d/daemdir-fyrir-milljona-dosasvindl-i-eyjum) er það rétt skilið hjá mér að þeir hafi dregið að sér 2 milljónir sem þeir héldu eftir og greiddu einungis 140þús fyrir verknaðinn?

Er það ekki bara great_success.gif ?

5 comments
  1. Ekki lögfræðimenntaður enn skilst að sakakostnaður er nokkuð vegin sektinn fyrir gjörninginn eftir að stolna þýfinu hefur verið skilað.

  2. >Til sakarkostnaðar teljast óhjákvæmileg útgjöld vegna rannsóknar
    sakamáls og meðferðar þess, þar á meðal þóknun verjanda og
    réttargæslumanns, kostnaður og þóknun vitna svo dæmi séu tekin en kveðið
    er á um sakarkostnað í XXXIV. kafla laga um meðferð sakamála.

    Þannig þessar 140 þús fara til ríkisins, en ekki til fyrirtækisins sem þeir svindluðu á. Það kemur ekkert fram í fréttinni hvort þeir þurfi að greiða þessar 2 milljónir til baka.

  3. Google menntaður lögfræðingur.

    En að öllu gríni slepptu að þá er spurning hvort þetta sé þess virði að draga að sér svona litla fjárhæð þegar atvinnutækifærin í framtíðinni fyrir þessa aðila verða mjög svo takmörkuð. Get ekki ímyndað mér að atvinnutækifærin verði mörg hjá þessum mönnum á næstunni með svona dóm á bakinu á sér. Verður erfiðara fyrir þá að framfleyta sér á næstu árum þar sem það eru örugglega svona 99% líkur á að það sé ekki króna eftir af þessum peningum.

    En ég er samt ótrúlega hissa á því að starfsmenn á svona endurvinnslu stöðvum geti bara búið til svona kvittanir án þess að vera með dósir.

  4. Ekki lögfræðingur, en mér sýnist (smkv. orðabók) að það sé gerður greinamunur á mismunandi ástæðum fyrir ýmsum greiðslum sem maður er dæmdur til þess að greiða. Klippt og límt beint af [vef Árnastofnunar](https://islenskordabok.arnastofnun.is)

    * **Málskostnaður**: Kostnaður við málarekstur
    * **Sakarkostnaður**: Málskostnaður í opinberum málum, þ.e. óhjákvæmileg útgjöld vegna rannsóknar máls og meðferðar þess
    * **Skaðabætur**: Peningagreiðsla sem ætlað er að gera tjónþola eins settan fjárhagslega og hann var fyrir tjónið
    * **Miskabætur**: Fébætur fyrir tjón sem er ekki fjárhagslegt

    Þetta samræmist því sem ég veit af leikmannsþekkingu minni af lagakerfum annars staðar (aðallega BNA). Væntalega mundi endurgjald sem nemur a.m.k. upphæð stuldar frá fremjanda til þolanda falla undir skaðabætur.

  5. Um tvö dómsmál er að ræða. Í öðru þeirra neitaði sakborningur að fá verjanda skipaðan og varði sig sjálfur fyrir dómi. Vegna þessa borgaði hann engan sakarkostnað ([https://www.heradsdomstolar.is/domar/domur/?id=aa388c03-3b69-429a-bd8b-c212031222b2](https://www.heradsdomstolar.is/domar/domur/?id=aa388c03-3b69-429a-bd8b-c212031222b2)). Í hinu málinu var sakarkostnaður upp á rúmar 140 þús. kr. dæmdar og var það þóknun skipaðs verjanda ([https://www.heradsdomstolar.is/domar/domur/?id=a2099ecf-c554-40ee-8027-b0a59b178c02](https://www.heradsdomstolar.is/domar/domur/?id=a2099ecf-c554-40ee-8027-b0a59b178c02)) .

    Rannsókn málsins hefur ekki krafist hárra útgjalda af hálfu lögreglunnar. Það er líklega vegna þess að sakborningar voru samvinnuþýðir við rannsókn málsins. Þegar t.d. um fíkniefnamál er að ræða þá er oftast til eitthvað reiðufé sem lögregla leggur hald á við rannsókn. Ákæruvaldið þarf svo að krefast upptöku ávinnings afbrota ef til sakfellingar kemur sérstaklega í ákæru. Ef það er ekki gert þá fellur haldlagning niður.

    Það er skrýtið að í þessu máli hafi ekki verið farið fram á kyrrsetningu fjármuna sem síðan er krafist upptöku á. Ég myndi ætla að sakborningar hafi verið óvenju samvinnuþýðir og skilað ágóða afbrota sinna frjálsri hendi til lögreglu við rannsókn, en ég geri samt ráð fyrir að ákæruvaldið þurfi að krefjast upptöku ávinnings. Spurning er hvort að sakborningar hafi gert einhverskonar sátt við endurvinnsluna um endurgreiðslu ávinningsins, en það er bara ég að spekúlera. Það er erfitt að segja ef maður hefur ekki aðgang að rannsóknargögnum og ákæruskjalinu sjálfu.

    Seinasti möguleikinn er hreinlega að lögregla og/eða ákæruvaldið hafi gert mistök við meðferð málsins og gleymt að krefjast upptöku ávinnings. Ef svo er, þá já, great_success.gif is in order.

    ​

    Edit: sjá comment u/tastin hér að neðan, endurvinnslustöðin höfðar einkamál til að krefjast endurgreiðslu fjármuna á grundvelli sakardóms á hendur mönnunum.

Leave a Reply