Já, hæ… ég ætla að fá eina með öllu takk.

13 comments
  1. Krummi krunkar úti,
    kallar á starfsmanninn.
    Ég vil eina með öllu,
    steiktum og hráum lauk.

    :,:Komdu nú að aðstoða krumma,
    borgarpylsur í dag.:,:

  2. Þessi er víst fastagestur þarna. Á síðasta ári sat ég við útiborðið þarna og var að troða í mig þegar hann flaug rétt yfir mig og lenti á borðinu innan við meter frá mér. Mér varð svo bilt við að ég kramdi aðra pylsuna. Þessi hrafn er algjör hnulli, fallegur og merkilega gæfur. Ég deildi krömdu pylsunni með honum og gat rétt honum bita beint í gogginn. Mögnuð lífsreynsla, 10/10 mæli með!

Leave a Reply