Ég hef verið að skoða fasteignir til sölu og rekst reglulega á einhverja lóð til sölu, og myndirnar eru bara einhverjar arkitektateikningar eða tölvumynd. Hvað nákvæmlega er verið að selja hérna?

Er verið að byggja þetta hús og ég að fá það á toppprís ef ég bíð eða er verið að selja smá sandhrúgú með einhverja skissu frá arkitektúr sem leiddist? Stundum sé ég líka myndir af einhverjum steypugrunn og littlu ödru. Eru það bara verk sem einhver gafst upp á og vill núna selja lóðina? Er búið að leggja einhverjar pípur þarna? Á ég að kaupa og fjármagna þessar flottu teikningar?

Spyr hér því lýsingin segir nákvæmlega ekkert á þessum fasteignasölum og ég er forvitinn.

Edit: dæmi um auglýsingu: https://www.mbl.is/fasteignir/fasteign/820051/

2 comments
  1. Geturðu sett inn link á svona auglýsingu? Ég hef séð margar fasteignaauglýsingar en enga eins og þú lýsir. Lýsingin er yfirleitt mjög skýr um hvort lóðinni fylgi teikningar eða hvort búið sé að byggja eitthvað á lóðinni.

  2. Mér skilst að það sé verið að selja lóðina og það sem kemur á lóðina. Oftast þá staðsetninguna og teikningin er þá það sem er fyrirhugað að byggja þarna, en ég get ímyndað mér að það sé alveg hægt að breyta teikningum ef það er eitthvað sem þér líst ekki á.

    Edit: í einföldum orðum, svona auglýsing er beisiklí að segja “hér er staðsetning, hér er hugmynd um hvað skal byggja, okkur vantar fjármagn til að byggja þetta.”

Leave a Reply