
Sæl(l)
Er “Helvítis fokking fokk!” ekki nóg? Þarf að láta þá heyra það óþvegið? Er þinn innri Indriði að bugast og þú barasta verður að fá smá útrás? Finnst þér eins og allt sem þú segir hverfi út í tómið?
Þú ert á réttum stað, Láttu það flakka, vertu berskjaldaður/skjölduð í smá stund, losaðu þig við þennan óþverra.
​
Hugmyndin er að fólk fái stað til útrásar í þeirri von um að stuðla að betra almennara geðheilbrigði. Erfitt getur reynst að lesa í tónin hjá fólki í bundnu máli en við skulum ganga út frá því að hér séu fáir komnir til að rífast.
​
\—
Ef þig vantar að fá einhvern til að hlusta á þig ekki á opinberum vettvangi þá er alveg sjálfsagt að hafa samband við: u/kassetta, (Hér bætast við fleiri nöfn ef fólk biður sig fram)
Þar með sagt þá viljum við benda á að ef allt stefnir í strand þá er gott ráð að hafa samband við:
Pieta samtökin S: 552-2218.
[Bráðamóttöku geðþjónustu landspítalanns](https://www.landspitali.is/sjuklingar-adstandendur/deildir-og-thjonusta/bradamottaka-gedthjonustu/) s: 543 4050 eða 543 1000
Hjálparsími Rauða krossins S: 1717
4 comments
Ég þoli ekki að allir biðlistar séu langir. Ef man langar í aðstoð áður en allt fer í fokk þarf að bíða eftir að allt fari í fokk og þá erfitt að grípa inní og koma í veg fyrir enn verri afleiðingar.
Eg er með barn með greiningar og bíða eftir allskonar úrlausnum. A meðan bugast ég. Er alltaf á hörkunni. Allir í kring að þrýsta á mig að fara í veikindaleyfi vegna álags. En ég tel mig þá bara þa bara bugast á samviskubiti sem mun bara auka kvíða..þá er ég komin í fokk. Þannig allt eins gott að sinna minni vinnu.
Einnig er ég að horfa uppá fucked up barnaverndarmál sem er engin stefna í. Engin ástæða fyrir bvn að hags sér eins og þeir eru að gera í þessu tilfelli. Þeir virðast heldur ekki vita dag frá degi hvað skal gera. Þannig börnin í því tilfelli vita ekkert hvað verður þann daginn. Hver sækir þau, hvar munu þau gista. Munu þau sjá foreldri sitt þann dag. Má til með að nefna að þetta snýst engann veginn um vanrækslu eða neitt þannig. Bara ferlega undarlegt mál. En klárt mál að hagsmunir barna er ekki haft að leiðarljósi. En í grunninn bað foreldri um aðstoð á fyrra bragði fyrir mörgum mánuðum og það bara “nei þetta leysist sjálfsagt fljótt og við höfum engar áhyggjur af velferð barnanna”
Það er stórhættulegt og óvægið að transfólk þurfi að fara í gegnum biðlista fyrir amk 6 mánaða greiningar- og viðtalsferli, svo sex mánðar greiningarferlið sjálft (þar sem þú þarft m.a. að fara í viðtöl á Kleppi, takk), og fá það samþykkt til að geta einu sinni byrjað hormóna- og kynleiðréttingarferli sitt, sem er nógu langt og erfitt nú þegar. Það hjálpar ekki hve lítið af upplýsingum eru til um ferlið og aðgengi að lyfjameðferð fyrir ferlið og engin leið til að hefja lyfjaferli á eigin spýtur.
Þetta er fullorðið fólk sem er í mikilli sjálfsvígshættu ef þau standa í stað og horfa upp á meðfædd kyneinkenni líkama síns verða sýnilegri og sýnilegri í biðinni. Það ætti bara að vera nóg að leita til læknis og geta lagalega veitt samþykki sitt til að fá lyf/meðferðina sem það þarfnast án þess að fara í gegnum þetta niðurlægjandi og niðrandi sönnunarferli áður en þau geta einu sinni byrjað.
[Svo er víst upplýsingaflæðið lélegt þegar þú ert komin út hinum megin og eftirfylgnin lítil sem engin.](https://www.visir.is/g/20222297412d/segjast-o-upp-lystar-a-lifs-haettu-legum-bid-lista) Þannig þetta sýst varla um að veita rétta umönnun, þetta snýst forræðishyggju yfir minnihlutahóp með ekkert tillit til aðstöðu þeirra. Transfólk þarf að þola nóg í þjóðfélaginu að það þarf ekki á þessari óþarfa gaumgætni og kerfslegri efasemd að halda ofan á allt. Samþykki transfólks virðist algjört aukaatriði, það virðist mikilvægara að það þurfi fyrst og fremst samþykki samfélagsins á öllum stigum trans tilverunnar til að við séum viðurkennd og erum það sem við segjumst vera.
Fokking strætó og að formaður strætó sé einhver einkabílisti frá Seltjarnarnesi. Aaaargh!
Þoli ekki að ég þurfi að vinna í lýjandi stress innivinnu til að geta átt fyrir húsnæðisláni, bílaláni og námsláni og síhækkandi matarkostnaði. Vildi óska að ég gæti unnið bara fyrir hádegi og slakað á restina af deginum.
Er búin að vera korter í burnout i að verða ár núna en leyfi mér ekki að fara í veikindaleyfi ‘þvi það er illa séð’ innan geirans. Er að safna mér fyrir því að geta bara hætt og chillað í 3 mánuði.
Allt þetta stress hefur áhrif á heilsuna og mig grunar að það sé að hafa áhrif á frjósemi líka :(( Langar svo í breeeaaak.