Vísitala íbúðaverðs hækkað um 16,6 prósent á einu ári

7 comments
  1. Ég seldi eina íbúð fyrr á árinu sem ég hafði á útleigu undanfarin ár, ég seldi hana á tvöföldu verði en ég keypti hana á… mér líður eins og ég vann í lottó

  2. Ég hef verið að skoða fasteignir. Ég spurði fasteignasala á einni eigninni afhverju ásett verð væri rúmlega tvöfalt brunabótamatið. Hann virtist hissa á spurningunni og sagði að þetta væri bara svona.

    Lagaleg skilgreining á brunabótamati: “Brunabótamat skal taka til þeirra efnislegu verðmæta húseignarinnar sem eyðilagst geta í eldi og miðast við byggingarkostnað að teknu tilliti til aldurs, slits, viðhalds og ástands eignar að öðru leyti.”

    Hljómar það rétt að brunabótamatið sé helmingurinn af því sem maður er að eyða? Reyndar munar oft minna en það munar samt yfirleitt skuggalega miklu. Svo um daginn var ég að skoða íbúð í fjölbýli þar sem yfirlýsing húsfélags lá ekki fyrir en samt voru þeir byrjaðir að hafa opið hús og taka við tilboðum. Ég vildi ekki gera tilboð án þess að vita raunverulegt ástand húsins og fasteignasalin sagðist ætla að senda mér þetta um leið og hann fengi þetta í hendurnar sem gerðist aldrei svo hún hefur selsts einhverjum sem bauð án þess að vita ástandið. Ég yfirbauð hæð 75fm í ~70 ára gömlu húsi um 1.6m og var yfirboðin.

    Svo mörg merki um óheilbrigðan markað að maður er nánast hættur við að kaupa. Ég var að sjá ég gæti keypt einbýlishús á Akureyri fyrir þær upphæðir sem ég hef verið að bjóða í einhverjar smærri blokkaríbúðir hér. Við erum alvarlega að ræða að flytja frá Reykjavík og við værum í rauninni bara að flýja húsnæðismarkaðinn.

  3. Þetta mun örugglega aldrei lagast þótt að þetta hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga, því að það hafa ALLIR grætt nema unga fólkið sem hefur ekki haft tækifæri til þess að kaupa sér fasteign.

    Ríkið græðir því að þeir eiga banka + skattar.

    Bankarnir græða því þeir eiga fullt af fasteignum og eru að lána fólki sem hefur grætt mikið, win/win scenario og því stöðugari lán = stöðugari afborganir til þeirra.

    Bæjarfélögin græða því að fasteignagjöld hafa hækkað gríðarlega og verðmiðinn á lóðum.

    Leigufélög græða tá á fingri því að þeir eru að fá = hagstæðari lán, mjög safe fjárfesting sem skapar verðmæti (leigur) og hækkar í verði á hverjum einasta áratug (raunverð líka).

    Og síðan neðst í pýramídanum eru almennir borgarar sem græða líka.

    Ég sé ekki endi á þessu fyrr en það koma róttækar kerfislegar breytingar og við byrjum á að leysa ALLAR ástæðurnar af hverju ástandið er svona.

    Fókusinn hefur verið á framboðinu. “Þetta er bara út af því að framboðið er svo lágt og allir vilja bara byggja hótel og bæjarfélögin vilja ekki veita lóðir blablabla”.

    Það er einn partur af vandamálinu.

    Það sem er jafnvel stærra vandamál er hvernig fasteignir eru trítaðar eins og fjárfestingar. Um leið og það er byggt heila blokk þá kemur leigufélag og kaupir 90% af íbúðunum (ég fann ekki fréttina, minnir mig að ég las þetta á [vb.is](https://vb.is) og þetta var í Norðlingaholtinu fyrir ca 3 mánuðum, hérna eru samt sambærilegar fréttir: [https://www.vb.is/frettir/kaupa-140-ibudir-i-midborginni-fyrir-fjora-milljarda/81950/](https://www.vb.is/frettir/kaupa-140-ibudir-i-midborginni-fyrir-fjora-milljarda/81950/) (2013 reyndar) og [https://www.vb.is/frettir/kaupa-14-milljarda-blokk/166890/?q=leiguf%C3%A9lag](https://www.vb.is/frettir/kaupa-14-milljarda-blokk/166890/?q=leiguf%C3%A9lag))

    Síðan er samfélagið að lofsama fólki eins og þessum gæja [https://www.visir.is/g/20212170652d/24-ara-haskolanemi-og-ordinn-eigandi-fjogurra-ibuda](https://www.visir.is/g/20212170652d/24-ara-haskolanemi-og-ordinn-eigandi-fjogurra-ibuda) .

    Það er mjög flott hjá honum að hann hafi verið svona sniðugur og duglegur að fjárfesta í íbúðum og allt það. En þetta hefur mjög slæmar samfélagslegar afleiðingar í stærra samhengi. Ef allir boomerarnir hefðu gert þetta fyrir áratugum, þá værum við jafnvel í enn stærri gröf en við erum núna.

    Ég skrifa þetta sem frekar frjálslyndur aðili sem heillast af kapítalisma (oftast) btw.
    Það sem ég legg til er að það verði sett lög um fjárfestingar á fasteignum. Við ættum ekki að horfa á þetta sem fjárfestingar, þetta eru heimili, við þurfum öll að búa einhversstaðar og því skulu fasteignir vera með sérlög.

    Hugmyndir um lög:

    * Skattur af sölugróða (ef hann fer yfir raunhækkun)
    * Takmörkun á hversu mörgum fasteignum hver einstaklingur/fyrirtæki getur átt

    Dettur ekki annað í hug eins og er, en miklu gáfaðari einstaklingar geta fundið betri hugmyndir í þessum dúr.

    ​

    Þetta var meira svona langtímalausn svo næstu kynslóðir sem koma á eftir okkur verði ekki jafn fucked og við erum núna.

    Skammtímalausn gæti hljóðað svona:

    Ungt fólk er hópurinn sem hefur lent verst í þessu. Við höfum í raun ekki haft tækifæri á því að komast á fasteignamarkað (nema þeir gáfuðu sem hafa sparað frá ungum aldri/með ríka foreldra).

    Því legg ég til að ríkið í sameiningu við bæjarfélög skulu byggja íbúðir á lægra verði sem eru aðeins seldar til fólks undir 30. Þetta hefur verið gert fyrir eldri borgara áður, af hverju ekki fyrir ungt fólk? Ég átta mig heldur ekki á því af hverju eldri borgarar ættu að fá þessi tækifæri? Þau eru fólkið sem á að hafa grætt sem mest á fasteignum.

    /rantover

  4. Ég vil byrja á því að þakka Sigmundi Davíð og Framsóknarflokkum fyrir “leiðréttinguna” og 100% íbúðalán. Guði sé lof að fasteignaverð var “leiðrétt” á sínum tíma. Enginn newspeak-bragur yfir þessu eða neitt.

  5. Keypti fasteign í njarðvík á 39 milljónir.

    Kostaði 31 nýbyggð 2019

    Get ekki beðið að eyða klukkutíma á dag að keyra fram og til baka í vinnuna, bara til að fara heim í rok eyðimörk.

Leave a Reply