
Núna er það aðallega forvitni en hvað finnst fólki um MAST.
Mér finnst þetta vera eins og að þeir séu aðeins of ákafir í að gera hann að dæmi um hvað gerist ef menn ala upp villt dýr hér á landi en lenda líka í því að vera að “Targeta” hann sérstaklega.
Einnig spyr ég hvort þeir hafa verið með einhver leiðindi áður eins og t.d samtökin PETA. Hver er líka ykkar helsta skoðun á að ala upp villt dýr eins og t.d refi eða álika
(Varð mest forvitinn út af þessari grein: [https://www.visir.is/g/20212170923d/ruddust-inn-med-leitarheimild-til-ad-taka-refinn-en-gripu-i-tomt?fbclid=IwAR1nKTw4Prm3OSF0UC-5uf2Anph96kgDqfG0mDmgIO0JKXd-sQfIxaJDh1A](https://www.visir.is/g/20212170923d/ruddust-inn-med-leitarheimild-til-ad-taka-refinn-en-gripu-i-tomt?fbclid=IwAR1nKTw4Prm3OSF0UC-5uf2Anph96kgDqfG0mDmgIO0JKXd-sQfIxaJDh1A))
12 comments
Vonandi að það fari ekki að verða eitthvað trend að taka unga villtra dýra úr sínu náttúrulega umhverfi til að fá athygli á einhverjum samfélagsmiðlum. Villt dýr eiga heima í náttúrunni. Þetta er bara sorglegt dæmi og mér finnst ekkert að því að MAST taki þetta föstum tökum. Það eina sem MAST og PETA eiga sameiginlegt er svipuð skammstöfun.
Ég ólst nú upp á loðdýrabúi í Skagafirði og þekki refi vel. Þeir eru ekki ósvipaðir hundum sem gæludýr, samt sjálfstæðari og meiri grallarar. Öll dýr eru vilt í náttúrunni en refir eru skotnir á færi. MAST hefur oft sýnt hroka og hörku gegn mönnum. Hins vegar þarf drengurinn að fara að lögum eins og við hin en ef hann telur lögin ranglega túlkuð eða eitthvað þá getur hann farið í mál við MAST sem og hann hefur reyndar gert samkvæmt fréttum sem herma að hann hafi ráðið flokksfélaga mína, Magnús Davíð Norðdahl og Helga Þorsteinsson Silva, til að sinna því.
MAST þarf að breyta miklu hjá sér (ættu að líta til nágrannalanda og herma).Og losa sig við þessar risaeðlur sem vinna þar.
Ef gaurinn gefur refinum réttan mat (sagðist hann ekki gefa honum pulsur eða einhvern viðbjóð í einhverri frétt?), og getur haldið dýrinu ánægðu, þá sé ég ekkert athugavert við að halda dýrinu. Ég samt stórefa að hann geti replicate-að rétt líf handa refinum, sama hvað hann heldur, þetta er villt dýr.
Svo á svo auðvitað a nuke-a þennan ógeðis Húsdýragarð.
Það versta við þetta allt er að þetta dýr á sér enga möguleik á eðlilegu lífi, þ.e. villt í náttúrunni eins og það átti að fá að vera frá upphafi. Skiptir ekki máli ef hann tók refinn frá öðru fólki sem tók refinn, hann átti strax að hafa samband við fagaðila og koma honum i hendur fólks sem hefur þekkingu til að ala hann upp rétt. Á þessum tímapunkti lýtur hann bara illa út í mínum augum, athyglissjúkur á samfelagsmiðlum með annað en velferð dýrsins í fyrir rúmi. Finnst það allavega betra að MAST geri eitthvað i stað þess að hann haldi áfram að glanna sig með refinn og fólk fari að apa þetta eftir honum. Að sama skapi er margt ábótavant hjá MAST en það er allt önnur umræða finnst mér.
Þessi instagram rasshaus er sá íslendingur sem mér finnst auðveldast að hata þessa dagana.
Hrokinn í honum í viðtölum um þetta, fórnarlamba hlutverkið sem hann setur sig í, eins og það sé einhver guðsgefinn réttur hans að vera með saklaust dýr tjóðrað í keðju heima hjá sér og pynta það fyrir athygli á netinu, ég gæti ælt ofan í kokið á þessi gerpi.
Vona að MAST takist sem fyrst að frelsa greyið dýrið og koma honum í almennilegt uppeldi og öryggi. Verst að þetta skrímsli er nu þegar búið að eyðileggja möguleiki refsins til að aðlagast náttúrunni almennilega, en það væri allavega hægt að gefa honum einhvern séns á eðlilegu lífi meðal jafningja í húsdýragarðinum, eða koma honum í þetta reservation í Svíþjóð. Vona að það takist sem fyrst áður en greyið refurinn hættir að vera nógu sætur fyrir instagram og endar í einhverjum ruslagámi þar sem hann þjónar ekki lengur hlutverki sínu.
Refurinn sem er gáfaðasta dýrið hérlendis hefur loksins náð að temja ótemjuna Homo Sapiens. Þetta er þó undirtegundin Homo Snapiens (einnig þekktur sem TikTokapi) svo enn er langt í heimsyfirráð.
Ég veit ekki hvað mér finnst um þetta.
En ein spurning vaknar sem ég beini til þeirra sem eru í MAST-liðinu:
* Af hverju ætti það að vera verra líf fyrir ref að búa sem gæludýr heldur en úti í náttúrunni?
Í náttúrunni er a) refurinn heppinn að ná að lifa fyrsta veturinn, b) hann mun líklega deyja af náttúrulegum orsökum fyrir 5 ára aldur, c) eða þá að hann er skotinn á færi ef hann slysast til að búa nærri mönnum eða sýna sitt rétta eðli gagnvart öðrum dýrum.
Hinn valkosturinn er svo að verða 15+ ára, éta nóg af mat við stofuhita í Vesturbænum og glefsa bara í alla sem eru með girnilega putta.
Afhverju er fólk að halda því fram að hann geti ekki lifað villtur í náttúrunni ef honum er sleppt lausum?
Fyrstu viltu minkarnir voru af minkabúi og höfðu enga reynslu af því að vera utan þess en hafa engu að síður náð að dafna í Íslenskri náttúru.
Mín reynsla af Mast er að þeir hafi engin völd til að framkvæma eitt né neitt. Ég hef hringt í Mast til að fá kött fjarlægðann af heimili þar sem að eigandinn var ekki að gera það sem hann átti að gera. Lausn Mast var að ég tæki köttinn sjálfur af eiganda og eignaði mér hann, sem ég gerði.. mér var sagt að Mast gæti ekkert gert í málinu.. Mér finnst undarlegt hve langt þeir eru að seilast í þessu máli miðað við mína upplifun af þeim hér forðum.
Talandi um að taka villt dýr heim. Þá var þetta í fréttum um daginn.
[https://www.frettabladid.is/frettir/bjorgudu-hreindyrskalfum-og-hjukrudu-theim-til-heilsu/](https://www.frettabladid.is/frettir/bjorgudu-hreindyrskalfum-og-hjukrudu-theim-til-heilsu/)
Spurning hvort mast sé að vinn í þessu. Líklegast samt er þetta svona einum leyfist, annar ekki má dæmi.
Þegar ég var krakki fékk ég oft yrðling sem gæludýr yfir sumarið hjá frænda mínum sem tók alltaf nokkra af greni til að nota sem bandingja í grenjavimsluni það sumarið. Síðan á haustin var þessum yrðlingum slept og þeir spöruðu sig vel í náttúrunni.
Við skulum nú bara leyfa dómstólum að fella sinn dóm í þessu máli áður en við byrjum með lágkúrulegar blammeringar. Svona refir eru teknir sem yrðlingar en það er þannig að þegar búið er að uppræta refagrenin eru einstaka skyttur sem að þyrma yrðlingunum. Annars eru þeir bara skotnir í höfuðið með byssu.
Það er því fásinna að segja að stráklingurinn sé að skemma einhverja möguleika refsins á eðlilegu lífi þegar að þeir möguleikar væru auðvitað engir. Nema dauði.
Þeir sem þekkja til refa sjá að þessi er nokkurra ára gamall og langt frá því að vera yrðlingur.
Við skulum sjá að hvaða niðurstöðu dómsvaldið kemst en þangað til bíð ég a.m.k. spenntur eftir framhaldinu.