Nauðgunarmál fellt niður þrátt fyrir játningu

14 comments
  1. Þetta var ekki skemmtileg morgunlesning. Ég held þetta gæti verið nýtt “low” í þessum málum – en ég er ekki tilbúinn að fullyrða það af því það gæti gert lítið úr einhverju enn ömurlegra.

    En hvað er hægt að gera? Ég er hræddur um að mótmæli, hvort sem þau væru fyrir utan stofnanir eða heimili þeirra sem taka þessar ákvarðanir, skili engu og enn hræddari um að þegar mótmæli skila engu byrjar fólk að fá grillur um að taka sjálf á málunum.

    Þarf þetta að verða verra áður en þetta getur orðið betra? Ég vill eiginlega ekki vita hvað “verra” þyrfti þá að vera.

    Góðan dag, Ísland <3

  2. “Orð á móti orði”

    Hans eigin orð á móti hans eigin orðium þá? Vel gert dómari

  3. Ég skil ekki af hverju þessi mál eru ennþá felld niður af ákærusviðinu. Farið með þetta fyrir dóm í stað þess að taka ákvörðun fyrirfram.

  4. Þar sem ég hef smá áhyggjur af þegar svona mál, sem ætti að teljast open-and-shut case, poppa upp er hvort það sé enginn innan lögreglunnar eða dómskerfisins sem er að pæla í eða skoða hvernig áhrif þetta hefur á traust fólks til réttarkerfisins og lögreglunnar sérstaklega. Ef það nægir ekki að vera með játningu til þess að gaurinn verði kærður, hvað nægir þá? Hefur enginn innan kerfisins áhyggjur af því að það fólk sækji sér réttlæti utan dómskerfisins? Ekki myndi ég sætta mig þessi málalok ef ég væri aðstandandi þessarar stelpu.

  5. En munið gott fólk!

    Ekki gera neitt annað en leita að réttlætinu í kerfinu sem skilar svona niðurstöðum. Það er grunnstoð samfélags okkar að þið gerið ekkert annað og að gera eitthvað annað eins og tala um reynslu sína á samfélagsmiðlum er árás á grunnstoð samfélags okkar sem er réttur okkar hinna til að vera ekki að spá í þessum málum, hvað þá hugsa að grunnstoð samfélags okkar sé eitthvað mögulega gölluð.

    Kveðja,

    Fullt af fólki, sérstaklega lögfræðingar eins og Helgi Áss og Brynjar Níelsson sem minna ykkur á að við búum í réttarríki takk fyrir.

  6. “AfHvErJu fArA þÆr eKkI í gEgN uM rÉtTaRkErFiÐ, það er RétTa lEiÐin™”

    Út af svona shitti. Þegar kemur að kynferðisofbeldi er ekkert réttlæti að fá innan kerfisins og það vita allir vel sem tjá sig um svona mál.

  7. Þetta hefur alltaf verið fáránlegt en þetta er sérstaklega fáránlegt. Nauðgarar hafa nú þegar í minni skoðun alltof stuttan fangelsistíma og svona BS er líka alltaf að gerast. Það er ekkert sem stöðvar þá frá því að gera svona hryllilega hluti aftur.

  8. Nauðgari heldur á myndavél: “tíhí nú ætla ég sko að nauðga!”

    *nauðgar konu á myndbandi

    Dómari: “það eru bara ekki næg sönnunargögn”

    Ísland bezt í heimi!

  9. Mikið óttalega þætti mér vænt um að allir þeir sem kalla til breyttra vinnubragða, þá sérstaklega eftir múgæsing eins og þennan, fengju að prufukeyra það réttarferli sjálf sem sakborningar.

    Verkferli lögreglu í svona málum eru ekki leyndarmál. Fólkið sem að málum eins of þessum koma eru ekki vorkunarlaus ‘sjallaskipuð’ siðblind hræ sem svífast einskis til að klekja á nauðgunarfórnarlömbum.

    Það væri þess frekar, með það að leiðarljósi, betra að átta sig á nákvæmlega hvað gerðist í þessu málaferli og hvaða lagalegu ástæður gerðu það að verkum að málið endaði sem svo. Frekar en, eins og Fréttablaðið gerði, úthrópa ódæmdan aðila sem nauðgara á meðan barið er í borð yfir óréttlæti sem aldrei er þó rekið né skilgreint gagnvart núverandi lögum.

  10. Þetta er mjög svo undarlegt mál.. Jú,jú, auðvitað á að halda sig við saklaus until fundinn sekur en það ætti ekki að vera mikið mál að finna manninn sekann sem hefur, nú þegar, játað sig sekann.. Mjög svo undarlegt mál.

Leave a Reply