[https://www.lyfjastofnun.is/frettir/melatonin-i-vaegasta-styrk-verdur-ekki-flokkad-sem-lyf-ad-tilteknum-skilyrdum-uppfylltum/](https://www.lyfjastofnun.is/frettir/melatonin-i-vaegasta-styrk-verdur-ekki-flokkad-sem-lyf-ad-tilteknum-skilyrdum-uppfylltum/)

Þetta fór alveg framhjá mér. Ef einhver hefur notað þetta en gengið illa að flytja inn (eins og mér gekk).

3 comments
  1. Vissi ekki að væri enn flokkað sem lyf, því náttúrlega eru flestir á Íslandi ábyggilega að fara vera lágir á melatónín einsog d-vítamín er almennt lágt. Enda sjaldan sem ég sé sól á þessu landi, en þegar ég geri þá er farið í sólbað samhliða oft að skipta um þakjárn, pappa og klæðningu. Mörg svona lyf eiga það til að hafa áhrif á náttúrlega framleiðslu þessara efna, sama tíma og ég hef nú verið alla ævi á astmalyfjum og er á gigtarlyfjum þar með hef ég sennilega fyrir löngu síðan ruglað verulega í nýrnahettum mínum. Því þær sjá að öðru leiti óbreyttu um framleiðslu á corticosteroids sem flest astma og gigtarlyf innihalda en ég er sennilega löngu hætt að framleiða slíkt í nýrum sjálf.

    Melatónín er hinsvegar framleitt í heilakönglinum, en veruleikinn er sá að ólíkt nýrnahettum og inntöku á corticosteroids þá hefur auka melatónín inntaka engin raunveruleg áhrif á náttúrlega framleiðslu heilaköngulsins á melatónín. Hinsvegar með aldri minnkar hann framleiðslu á melatónín, sem getur valdið vandræðum. Sé því ekki raunverulega hversvegna það flokkast sem lyf persónulega. Þó auðvitað ef náttúrleg framleiðsla á því er fín myndi ég ekki ráðleggja að taka það frekar en annað ef ekki þörf á því.

Leave a Reply