Sniðugt scam, nema gleymdist að þýða smá…

10 comments
  1. Mamma gamla féll fyrir svona póst í fyrra og það fór allt í steik, þurfti að loka kortinu og vesen..

    Ræðið svona mál við eldri ættingja ykkar því mörg þeirra glepjast við svona tölvupósta

  2. Ég hef fengið þetta líka, en ég skil ekki hvaða angle þeir eru að spila. Það er ekkert þarna sem biður þig um kreditkortanúmer eða álíka. Ég skil ekki hvernig þetta virkar…

  3. Fékk í dag, náðu mér næstum því þar sem ég er að bíða eftir sendingu og er nýfluttur. Tikkaði í öll box. En fannst eitthvað gruggugt við að þurfa að greiða með korti, lág upplausn á Pósturinn myndinni, nafnið á síðunni og auðvitað info@blackboxoakland.com er augljóst ekki pósturinn.

  4. Ef þú hefur fengið þennan tölvupóst, eða sambærilegt í nafni Póstsins sem þér finnst grunsamlegt, endilega áframsenda það á [oryggi@postur.is](mailto:oryggi@postur.is)

  5. Fékk þetta líka. Senti póst u.þ.b. sama tíma og clickaði á linkinn. Síðan vildi ekki loadast og mig grunaði líka að þetta væri eitthvað skrítið áður en ég fattaði að þetta væri scam.

    Vonandi er ég ekki fucked fyrir að clicka á link sem gerði ekkert.

Leave a Reply