Forsíða FBL: Óvéfengdur lofsöngur til loddara sem nærist á sársauka og peningum syrgjandi fólks.

11 comments
  1. Hvað er eiginlega í gangi, hvers vegna eru íslenskir fjölmiðlar farnir að birta svona kjaftæði gagnrýnislaust?

    Það var líka frétt um draug í háskólabíó um daginn, og viðtal á Rás tvö við mann sem hélt fram að á Íslandi væri bara eðlilegt að tala um að einhver væri skyggn, alveg án nokkurrar gagnrýni.

    Hefur þetta alltaf verið svona?

  2. Og þetta er ástæðan fyrir því að ég setti lykilorð á dauða minn (eða hans) við kærastann… rosa random engin raunveruleg tenging við líf okkar bara lykilorð á alla vega einu af þeim þremur málum sem við tölum að einhverju leiti. Engin skilaboð að handan tekin gild án lykilorðs og ekki nein staðar skrifað niður. Hef nú þegar séð ‘oh shit’ look á andliti eins svindlarans og engin dauður ennþá!

  3. Fólk elskar að láta ljúga að sér… Þegar þú áttar þig á því fara margir hlutir að meika sens.

  4. Setti þetta í fjölmiðlanördar á fb og fékk bágt fyrir. Einnig:

    >Anna Birta segist hafa nóg að gera. Covid gerði það að verkum að hún fór að halda fundina í gegnum netið og segist hún varla hafa trúað því hversu auðvelt það reyndist. „Ég verð mjög líkamlega þreytt eftir fundi en finn minna fyrir því ef ég geri þetta á netinu.“

    oookay

  5. Ef einstaklingur trúir á drauga og anda og slíkt, þá má vel vera að hann græði á því að nýta sér þjónustu miðils. Lyfleysuáhrif geta verið ýmiskonar. Sjálfur hefði ég enga löngun til þess, en ég gagnrýni ekki fólk fyrir þær leiðir sem það fer til að linna þjáningum sínum.

    Þó þykir mér frekar slappt að ýta undir lögmæti miðla með svona fréttaflutningi.

  6. Miðlar eru að mínu mati ein lægsta sort. Þeir lokka til sín syrgjandi fólk og flétta af því fé, sumir verða háðir… Ógeðslet. Móðir mín fyrirfór sér fyrir þónokkru. Sumt af mínu nánasta fólki reyndi að fá mig til þess að mæta á fund til miðils… Klíjar við tilhugsunina.

Leave a Reply