[Hlekkur á frétt hér.](https://www.ruv.is/frett/2022/10/03/rumlega-atta-thusund-ibudir-i-byggingu)
Þegar maður les fréttina sér maður að þetta er ekki árleg viðbót heldur íbúðir í smíðum.
Engu logið þar (vonandi) en árleg fjölgun íbúða ætti að vera fréttin.
**Rúmar 3 þúsund íbúðir á ári** bætast við markaðinn. Allt of lítið.
Mér finnst við verða að gera miklu betur og einnig að hjálpa ungu fólki að kaupa.
Ef lóðaskortur er ástæðan þá verðum við að byggja hærri hús.

3 comments
  1. Þriðjungi fleiri íbúðir eru í byggingu nú en á sama tíma í fyrra. -þetta er fyrsta lína greinarinnar sem segir meira og hljómar betur en fyrirsögnin sem er ekkert svo ruglandi til að byrja með nema maður haldi að öll hús taki að meðaltali 1 ár að byggja

  2. Það var talað um á rúv man ég að þyrfti að byggja um 3500 til 4000 íbúðir á ári um 35.000 á næstu tíu árum til að koma stöðugleika á markaðinn svo ef það þarf bara 500-1000 í viðbót þá erum við nú ekki of langt frá því markmiði.
    Ég var allavega búin að byggja þrjú hús áður en ég varð lömuð af sársauka, neyðist nú til að vinna við skrifstofustörf því get ekkert unnið að viti lengur. Ætla allavega að byggja sjálf þó svo gæti kannski bætt við þessa tölfræði eitthvað á næstunni ef ég lifi svo lengi. 🦊

Leave a Reply