Hótað vegna kynhneigðar sinnar

5 comments
  1. Hinsegin fólk hefur verið að benda á það undanfarin ár að hin stóru skref sem samfélagið tók undir lok seinustu aldar og byrjun þessarar séu að ganga hægt til baka, hatur sé að aukast og öryggi okkar að minnka. Því miður eru ennþá þeir sem vilja stinga höfðinu í sandinn og halda því fram að hatri í garð hinsegin fólks hafi verið útrýmt með öllu. Maður vonar að svona atvik geti opnað augu einhverra.

    Nú er bara að vona að hann Arnar hendi kæru á þessa drullusokka svo hægt sé að hirða af þeim töluvert fé.

    Edit: Þetta er nótabene ekki eitthvað einsdæmi. Heill hellingur af hinsegin fólki, fötluðu fólki og fólki af erlendum uppruna hefur verið að fá þessi símtöl undanfarið.

  2. Mun aldrei skilja af hverju fòlk lætur hluti einsog kynhneigð annara, eithvað sem hefur núll áhrif á það sjálft, trufla sig svona mikið.. ég meina allir fordómar og hatur eru mega heimskuleg, en homóphobía tekur alveg kökuna að mínu mati.

  3. Ég hef tekið eftir auknum fordómum hjá ungu fólki. Ég hef verið að velta fyrir mér hvort þetta sé einhverskonar “counter culture” miðað við þetta “happy, happy, joy, joy” þema sem hefur verið reynt að þröngva upp á allt og alla.

  4. Ég held að þetta hatur hafi alltaf verið við lýði en að fólk sé einhvern veginn að verða óhræddara með að tjá sig um það opinberlega. Hlutir sem gerast erlendis hafa áhrif hérna á Íslandi jafnvel þó viðkomandi hlutir hafi svotil aldrei viðgengist hér.

    Svo var þarna íslenska rasistasíðan sem var að laða til sín unga karlmenn mest megins, þessir aðilar margir hverjir komnir á fullorðinsárin núna.

Leave a Reply