
Nú veit ég ekki alveg til hvers ég ætlast með þessari færslu, en þetta mál hefur hrjáð mig of lengi og mér finnst ég þurfa að tala við einhvern um þetta.
Þegar farið er á sýningu hjá Sambíó er stutt myndband sem er spilað í hvert skipti, áður en myndin sjálf byrjar, gert til að sýna fram á hljóð- og myndgæðin ([nokkurn veginn eins og hvað THX gerir](https://www.youtube.com/watch?v=86IrVpIY3tY)).
í þessu myndandi sjást þrjú lituð ljós sem svífa um stund um skjáinn með slóð sem fylgir þeim, áður en þau sameinast. Eitt þessara ljósa er gult og þegar slóð þess fer yfir neðri-vinstri fjórðung bíótjaldsins kemur stutt skjáskot úr myndini 300. Þetta er senan þar sem Leonidas, sem Gerard Butler leikur, öskrar “[This is Sparta!](https://youtu.be/4Prc1UfuokY?t=126)”.
Hefur einhver hér tekið eftir þessu? Ég hélt fyrst að ég væri að missa vitið en hef síðan bent nokkrum vinum á þetta. Ef svo vill til að eitthvert ykkar fari í bíó eftir að lesa þetta, ENDILEGA látið mig vita hvort þið takið eftir þessu. Og njótið þess að geta aldrei hætt að sjá feluþjónin.
1 comment
[ertu að tala um þetta?](https://www.youtube.com/watch?v=93_t7T95bAY)