Meirihlutinn vísar tillögu um leiguþak frá

10 comments
  1. Nota bene, þetta var ekki tillaga um að borgin setti upp leiguþak. Heldur einfaldlega að hún skori á ríkið að setja lög um slíkt. Það var meirihlutanum ofviða.

    Hversu lengi ætlum við að vera eins og strútar með hausinn í sandinn og neita að fara eftir þeim leiðum sem virka í löndunum í kringum okkur?

  2. Ríkisstjórnin er í forsvari fyrir ríkt fólk. Ríkt fólk á leigumarkaðinn. Ríkt fólk vill ekki minnka gróða möguleika sína.

  3. Enda eina rétta í stöðunni. Stærsta vandamálið er að það var í allt of langan tíma ekki nærri því nógu mikið byggt (loksins núna byrjað að lagast að einhverju leiti), leiguþak myndi vera sprengja inn á markaðinn sem myndi halda aftur af nauðsynlegri frekari uppbyggingu íbúða.

  4. Þakka þér sósíalistar fyrir að setja ekki bara þessa ályktun, heldur sýna hvaða flokkar eru bara að þykjast vera í andstöðu við óbreytt ástand (sem er að kapítalisminn tekur allt). Ég styð húsaleiguþak og einnig endurupptöku þess að ríkið byggi sjálft húsnæði með ríkisstarfsmönnum, viðhaldi eignarhaldi og útvegi grunnhúsnæði. Látum “frjálsa markaðinn” spila í lúxushúsnæði, höfuðborgastéttin hefur reynst vanhæf til að útvega öllum húsnæði.

  5. Við langtíma leigu í Búlgaríu (12.mán) þá lækkar leigan miðað við skammtímaleigu. Við undirritun er samningur geymdur í bankanum, svo leigusali hækki ekki leigu af íslenskum geðþótta. Engar verðtryggingar.verðbólga er þó í dag 20% vegna orkuverðs og EU, sem þeir eru í en afar ósáttir við þá vegna endalausra svikina lofarða. Leigu öryggi er gott og geyma samninginn í Bankanum mætti vel skoða á skerinu.

  6. Leiguþak er kannski ekki besta lausnin.

    Það mætti byrja á því að setja eitthvað regluverk um leigu.

    T.d. hvenær má hækka leigu og hvenær ekki, bæta úrræði fyrir leigjendur sem þurfa að leita réttar síns o.s.frv.

    Í dag er þetta “leigusalinn segir” og algjört villta vestrið. Það þarf að jafna stöðuna á milli leigusala og leigjenda talsvert. Leiguþak væri skammtímalausn sem að væri svo afleit til lengri tíma.

  7. Svakalega er íslenska stjórnmála stéttin orðinn þreytt og aum. Hún getur ekki einusinni leyft sér að gagnrýna aðra stéttarfélaga sína.

    Við erum yfirmenn þessa fólks, þó svo að það hagi sér alltaf eins og það sé yfir okkur hafið. Ef við erum ekki sátt með að fólk hangi í dúndur vel launaðari og kósí innivinnu og nenni ekki að lyfta fingri – nema til að gaslýsa okkur með útskýringum á afhverju það að gera ekki neitt sem við viljum sé í raun að gera eitthvað – þá þurfum við að sýna það í verki.

    Við þurfum örugglega að sýna það í verki mikið oftar en á fjögurra ára fresti, þangað til að það- er komin einhver metnaður og baráttuandi aftur í þessa þrettu og aumu stjórnmála-stétt.

  8. Já leiguþak er slæmt jada jada jada… minnkar framboð og svo koll af kolli. Er samt ekki pæling að skoða eftirspurnina?

    Ef Airbnb er alltaf hagstæðara fyrir leigusala en að hafa leigjanda er þá ekki spurning með að skoða það. Var að leigja út í langtímaleigu um daginn og strax buðust tilboð umfram umbeðið leiguverð ef sá sem leigði mætti hafa húsið á Airbnb. Afþakkaði þessa vitleysu, fólk á Íslandi þarf skjól yfir höfuðið en túristar sem ná ekki að bóka hótelherbergi mega bara gista í tjaldi.

    Sé allavega eftir því að hafa kvartað undan hóteluppbyggingu hér í denn, byggið öll hótel sem til þarf til að þetta túristalið reddi sér á annan hátt en að keyra upp verðið á almennum markaði.

  9. Bara eitt orð…. FOKK!
    Ég átti svo sem enga von á því að stjórnvöld gerðu nokkuð fyrir fólk á leigumarkaðnum, við erum ekki jafn mikið fólk og fasteignareigendur…. sorgleg staða í þjóðfélaginu 😔

  10. Ég veit ekki hve rétta lausnin er en það þarf augljóslega að ná einhverjum tökum á leigumarkaðnum. Þó það væri ekki nema til að minnka villta vestrið á þessum markaði. Kannski ættum við að byrja á því að hætta að kalla það leigu**markað**.

Leave a Reply