Nýfrjálshyggjan veldur streitu hjá mæðrum

5 comments
  1. Hún bætti við að nýfrjálshyggjan hafi einnig áhrif á tilfinningar fólks, en samkvæmt henni þurfi fólk að vera „besta útgáfan af sjálfum sér“ eða „lifa sínu besta lífi“ í gegnum persónulegt val, neyslu, sjálfsvinnu og ýmiss konar samkeppni í einkalífinu. „Í þessu felst einnig að móta tilfinningar sínar, sýna seiglu andspænis mótlæti, vinna að hamingju og jákvæðni á meðan reiði, tilfinningalegar þarfir, þreyta og gagnrýni (neikvæðni) eru litnar hornauga. Þannig upplifir fólk að það þurfi að vera hamingjusamt, sýna seiglu og aðlögunarhæfni sama hversu erfiðar eða streituvaldandi aðstæður þess eru.“

  2. Fátt þreyttara en að kalla allt sem manni líkar ekki “nýfrjálshyggju”. Orðið algjörlega gjaldfellt hugtak.

  3. Hvað með nýfrjálshyggjustefnuna að allir verði að eiga allt sjálfir og einir? Að öll leiga og sameign sé slæm?

    Hún hefur nú steypt ansi mörgum í svo djúpar skuldir við bankana að þeir hafa aldrei komist út.

  4. [Nýfrjálshyggjan](https://en.wikipedia.org/wiki/Neoliberalism#Global_health) veldur streitu hjá öllum, bæði með að sannfæra fólk um að við erum einungis þess virði sem vinnan okkar skapar sem og með að grafa undan allri heilbrigðisþjónustu í von um að einkavæða hana – þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu.

    Nýfrjálshyggjan er samt extra slæm af því hún er; vita vel skilgrein eins og hlekkurinn fyrir ofan sannar, vel rannsökuð og afleiðingar þessara stjórnmála eru núna þekktar eftir áratugi, en samt leyfa svo margir íslendingar sér að þykjast ekki skilja hvað átt er við og segja alla gagnrýni á nýfrjálshyggju vera innantóma – svo það að reyna að tala um alvarlegar afleiðingar hennar er einstaklega frústrerandi. Meira að segja fjármála ráðherra okkar hagar sér svona í þeim fáu viðtölum sem hann er gagnrýndur.

    Þetta er samt svakalega mikilvæg gagnrýni, og ég mæli með að fólk lesi sér til um hugtakið frekar en að hanga í vísvitandi þekkingarleysi.

  5. “Í þessari ritgerð minni leitaðist ég við að ná niðurstöðunni að nýfrjálshyggjan sé ástæða fyrir auknu stressi hjá mæðrum með því að tengja hugtakið ‘nýfrjálshyggja’ við allskyns neikvæða og óskylda hluti”.

    “Í næstu ritgerð minni mun ég leitast við að upphefja ‘fortíðarafturhaldsánauð’ mæðra og hvernig aukið val í lífinu og bætt lífskjör þeirra og barna þeirra veldur þeim bara angist og leiðindum.”

Leave a Reply