Hvernig er þetta leyfilegt?

15 comments
  1. Gætu þá t.d. allir þingmenn S, C, P, M og F skráð sig í vinstri græna núna og VG þá verið ein í ríkisstjórn með u.þ.b 58% þingmanna, vvo myndu þeir bara skrá sig aftur í sína flokka fyrir næstu kosningar.

  2. Veit það ekki alveg, en pabbi minn hjálpaði honum mjög mikið í kosningarbaráttunni og finst Birgir hafa algerlega svikið vinnu út úr honum með þessu þar sem pabbi er miðflokksmaður

  3. Mér finnst þetta vera hjákátleg og í raun fyrirlitleg tækifærismennska hjá Birgi – Hann sér augljóslega að Miðflokkurinn er sökkvandi skip, og flýr. Allt þetta hjal um Klaustursmálið og vantraust innan flokksins er augljós steypa; Ef þetta hefði gengið svona fram af honum þá hefði hann farið úr flokknum þá, fyrir þrem árum. Það er augljóst að ef Miðflokkurinn hefði fengið betri kosningu þá hefði hann ekki farið.

    Hinsvegar – Já, þetta er leyfilegt, og þetta verður að vera leyfilegt. Þingmenn eru skv stjórnarskrá einungis bundnir af eigin sannfæringu.

    Ef það væri bannað að skipta um flokk á milli kosninga, þá myndi það engu breyta – Þingmenn myndu einfaldlega hætta að kjósa með sínum flokki og vera virkir í starfi síns flokks. Flokkar eru ekki fótboltalið, heldur hópur af fólki með svipaðar skoðanir að vinna saman.

  4. Sjallar munu sjalla

    Ef einhver vafi var á að þeir eru upp til hópa óheiðarlegir þá vona ég að sá vafi sé horfinn núna.

  5. Það er nú ekki eins og hann sé fyrsti þingmaðurinn sem gerir þetta, en sennilega sá sem er sneggstur af því eftir kosningar. Ætli honum hafi ekki bara langað svona rosalega þing, en ekki sé aðra leið til að komst þangað en með stuðningi kjósenda Miðflokksins.

  6. Held að venjulega orðatiltækið sé “Löglegt en siðlaust”. Frekar gróft, jafnvel þeir sem elska löglegt en siðlaust virðast finnast þetta dálítið of nakin tækifærismennska.

  7. Eftir talningu atkvæða var Birgir ekki á þingi.

    Svo er skyndilega ákveðið að telja aftur í norðvestur, þó að engin hafi beðið um það.

    Tölur breytast lítilega og skyndilega er Birgir kominn á þing.

    Tveim vikum síðar er Birgir komin í Sjálfstæðisflokkinn.

    Kjörgögn voru ekki innsigluð og lágu á borðum í læstu herbergi sem fullt af fólki hefur lykil af.

    Ég er ekki að staðhæfa nokkuð með þessu, en það er farið að vera frekar mikil skítalykt af þessu öllu saman.

  8. Þetta væri kannski ekki svona mikið mál ef maður kysi fólk en ekki flokka. Þá myndi fólk heldur ekki endilega fljóta inn vegna þess að flokkurinn fékk ákveðið mörg atkvæði, bla bla – og röðin á fólki í flokkalistanum væri þá ekki eins mikilvæg.

  9. Þannig ef ég er orðinn gamall og vil kannski kreista út 4 ár í viðbót á þingi, þá gæti ég jafnvel verið í vinstri flokk eða hvaða flokk sem er þar sem líklegra er að ég sé kosinn inn á þing og framarlega á lista, sagt mig úr honum síðan og í framhaldinu gengið í hægri flokk til dæmis, heldur en miðað við að ef ég hefði boðið mig fram í þeim hægri flokki þar sem líklegast hefði verið minni möguleikar innan flokksins að vera framarlega á lista og komast á þing.

  10. Í praxís myndi þetta virka nákvæmlega eins án þess að skipta um flokk. Viðkomandi myndi bara ráðstafa atkvæðum sínum öðruvísi en búast mátti við (m.t.t. flokkadrátta).

    Athugasemdin hjá /u/dtatdm um Rósu Björk og Andrés Inga er spot on en skil vel hvers vegna hún hlýtur ekki brautargengi á þessum vettvangi.

    Stundum er helvítii þægilegt (en líka óþægilegt!) að vera ekki stropaður af flokkshollustu.

  11. Eftir fyrri umræður um persónukjör á /r/Iceland hafði mig ekki grunað að svona margir væru andsnúnir þessu.

Leave a Reply