Eruð þið með einhver heitt súkkulaði uppskriftir? Það besta sem að ég get gert er bráðið súkkulaði í mjólk

21 comments
  1. Muna að setja smá salt útí mixtúruna. Salt gerir allt betra.

    Ég hef alltaf gert tvær mismunandi uppskriftir í gegn um tíðina.

    Önnur er þessi: nýmjólk og suðusúkkulaði + smá salt, hita í potti á lágum hita þar til súkkulaðið er alveg bráðið og engir kögglar eftir, hef aldrei mælt neitt.

    Hin er nýmjólk, kókóduft og sykur + smá salt, einnig aldrei mælt, fer allt eftir því hversu biturt eða sætt þú villt það. með þessa geturu líka leikið þér með krydd eins og t.d. kanil eða chilli.

  2. Settu nýmjólk og rjóma í pott. Ég fer í 50:50 hlutfall, en ef þér er annt um æðarnar þínar má setja meiri mjólk en rjóma. Hitaðu blönduna rólega að suðu. Passaðu þig á að ekkert brenni. Skelltu suðusúkkulaði og dökku súkkulaði í pottinn og hrærðu vel þar til allt bráðnar. Settu örfáa vanilludropa út í fyrir smá framandi keim.

    Og þá ertu kominn með jólasúkkulaðið mitt. Berið fram í sætum bollum með þeyttum rjóma og súkkulaðispæni.

    ég hef verið að gera tilraunir með negul og kanil til að skapa meira jólabragð, en það hefur ekki enn sigrað gamla góða hvað bragð varðar.

  3. Það er ekkert betra en brætt súkkulaði í mjólk.

    edit: fann þann sem þolir ekki heitt súkkulaði

  4. Uppskriftin á konsúm pakkanum er þrusufín. Mæli með ögn af salti út í, og fyrir “djarfa” má alveg nota meiri súkkulaði/minna mjólk.

    Fyrir lengri komna: Smá appelsínubörkur til að pimpa þetta enn frekar, og rjómi… að sjálfsögðu rjómi.

  5. Pabbi gerir besta kakóið, en það eru engin hlutföll – bara smakka til.

    Sjóða saman ca botnfylli af vatni, kakó (hef notað bæði Kötlu eða Cadbury’s í appelsínugula dunknum, eftir því hvað er til) og sykur. Þegar það er kekklaist er suðusúkkulaði brotið ofan í pottinn og hrært þar til það er bráðnað. Nýmjólk er svo hellt úti og smakkað til þar til kakóið er tilbúið. Best svo með þeyttri rjómaslettu.

  6. Einfaldast finnst mér að setja litla smjörklípu í pott og bræða súkkulaði í því á lágum hita og byrja svo að bæta mjólk út í mjög rólega og hræra saman þangaðtil að súkkulaðið er orðið mjólkurkenndara þá er hægt að hella restinni af mjólkinni út í og hækka hitann og bæta svo smá salti við í endann.

    Það er hægt að hafa rjóma blandaðann í kakóið sjálft en mér finnst betra að þeyta rjómann og setja ofaná.

    Þeir sem hafa ekki prufað að setja smá smjör í kakóið, prufiði og það verður ekki aftur snúið!

  7. Heitt súkkulaði er bara í boði fyrir þá sem hafa verið úti að leika í snjónum í að minnsta kosti 1.5klst.

    ég veit ekki af hverju ég hef þessa reglu. Ég bara veit að ég hef alltaf framfylgt henni.

  8. 150 gr súkkulaði brætt í smá vatni
    1 líter mjólk
    3 msk sykur
    Salt eftir smekk

    Ef þú fílar lakkrís þá er geggjað að setja smá lakkrísduft úti

  9. Ég blandaði alltaf kakódufti(þessu í appelsínugula sílendernum) sykri og mjólk og sauð í potti, setti jafnvel smá skvettu af vanillu dropum eða smjöri 😀 hef samt ekki gert heitt kakó síðan ég var barn.

  10. Hlutföllin í þessari fara eftir smekk:

    Setur sykur í þykkbotna pott og rétt bleytir í honum með vatni. Hitar á miklum hita þartil sykurinn verður að fallega brúnni karamellu.

    Á meðan karamellan er að malla hitaru nýmjólk í öðrum potti. Ekki sjóða, bara hita.

    Þegar karamellan er fallega brún hellir mjólkinni rólega yfir. ATH:karamellan er vel yfir 100gráðum, þannig að mjólkin hvell-sýður. Hellið rólega þartil öll mjólkin er komin yfir. Hrærið á meðan með gaffli og lækkið undir þannig að suðan hætti.

    Karamellan á eftir að mynda smá kekki. Haldið áfram að hræra þartil hún leysist upp.

    Setjið súkkulaðið útí. Ekki misbjóða uppskriftinni með einhverju suðusúkkurusli, notið alvöru súkkulaði.

    Salt á hnífsoddi og VOILA!

  11. uppskrift fyrir 1 bolla

    2 dl nýmjólk
    1 dl rjómi
    hálf plata suðusúkkulaði
    1 msk bökunarkakó
    1 tsk púðursykur
    dass af salti
    dass af kaffi

    öllu blandað saman í pott. Hitað upp að suðu, hrærið allan tímann með píski

    laaaaaang best

Leave a Reply