Vinir okkar á ‘Today I learned’ ræða um kynþáttafordómafull lög sem voru við gildi á Íslandi þar til seint á 6 áratug síðustu aldar

19 comments
  1. Afsaka ef þetta er ekki við hæfi.

    En er bara forvitinn um hvernig fólki finnst kommentin á þessu, mér fannst þau hálf kjánaleg á köflum.

  2. Vil bara benda á að ég átti svartan vin í grunnskóla þannig ég er ekki meðsekur í þessu

  3. Kommentin á þessum þræði eru bara.. Váá. Ég þurfti að hætta að lesa, ég fékk svo mikinn kjánahroll. Allt svo óþægilega stútfullt af skrítnum dylgjum og staðalmyndum um íslendinga.

  4. Mér finsnt fáránlegt að halda því fram að Íslendingar séu rasistar. Ég hata enga manneskju út af þjóðerni (Danir eru nefnilega ekki manneskjur)!

  5. Á meðan bókstaflega þráðurinn um að Íslensk stjórnvöld hafi verið pínu vesen og rasísk í gamla daga er yfirtekinn af fólki helteknu af Íslendingabók, þá þykir mér þetta svosem allt í lagi, enda Íslensk stjórnvöld búin að þroskast aðeins, sem betur fer.

  6. Þegar við fórum að hlusta á rap og klæða okkur eins og þeir í kringum 1990 varð fullorðna fólkið alveg brálað. Svo það er smá til í þessu hjá þeim. Mig grunar að það hafi verið eins um allan heim.

  7. Whataboutism – Rasismi er vandamál í landinu mínu. Hér eru gömul lög sem sýna að í öðru landi voru rasistar. Þannig að við erum ekki svo slæmir.

  8. Ég er ekki að segja að þessi lög hafi ekki verið röng, en bara benda á að á sama tíma voru Bandaríkjamenn að hóta 6 ára Ruby Bridges lífláti fyrir það eitt að mæta í kynþáttablandaðan skóla.

  9. Þetta er furðulegt mál, en voru aldrei lög. Sennilegast hefur þetta verið óformleg beiðni / þrýstingur / samkomulag og heimildirnar sem ég rúllaði yfir benda til þess að þetta samkomulag hafi átt að takmarka fjölda svartra hermanna á landinu (þrír til fjórir væru OK) og hélt utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna því fram að þetta samkomulag hafi verið í gildi frá 51 til 61 (en þó eru vísbendingar um annað).

    Fyrrverandi og þáverandi utanríkisráðherrar Íslands tóku fyrir að þetta samkomulag hafi átt sér stað, en einn þeirra sagði að reynt hafi verið að takmarka ferðir Filipseyinga í varnarliðinu sem “sóttu á smástelpur um fermingu, en þeir eru litlir í vexti og ganga í augun á þeim” (???). Því hafi þó ekki verið sinnt, og Bandaríkin ráðið öllu um samsetningu liðsins.

    Varnarliðinu voru settar aðrar hömlur líka, t.d. mátti aðeins flagga tveimur Bandarískum fánum á svæðinu.

  10. Ég legg til að við – sem Íslendingar – förum á þessa r/todayilearned og útskýrum þetta Íslendingabókardæmi í eitt skipti fyrir öll. Bandaríkjamennirnir munu samt ábyggilega taka þráðinn yfir í trylltum mýtum og ásaka okkur að vera rasistar og segja að við trúum öll á álfa og borðum hvalkjöt í morgunmat

  11. Var þetta ekki bara samkomulag við Bandaríkjastjórn, man ekki eftir að þetta hafi verið í lögum?

    Auðvitað frekar fáránleg stefna og rasísk og út úr takti við nútímann og sýnir hvað íslendingar eða allavega ráðamenn okkar voru vitlausir.

  12. Síðustu 20 athugasemdir mínar hafa farið í að reyna að sannfæra Bandaríkjamenn um að Íslendingar ráðist ekki bara á svart fólk vegna þess að þeir mæta þeim greinilega aldrei. mikið af ‘yeah well the only reason those hate crime stats are so low is that the population is 93% white. They have no diversity so their racism just doesn’t show’.

    Líka mikil kjaftæði/xenophobia í formi ‘yeah well those simple fish people are all inbred and married to their cousins so doesn’t surprise me. Look at how PC and progressive I am btw’

  13. Það er stór merkilegt hvað Íslendingar verða sárir og fara í mikla vörn ef þau halda að einhverjum sem þau þekkja ekkert sé illa við sig.

  14. Btw er það ekki pure-a rasismi að vera flokka heila þjóð sem sifjaspellara og kynþáttahatara ?
    Fyrir utan hvað það er verið að kasta mörgum steinum úr glerhúsi í þessum þræði.

  15. Èg meina. Eins og flestir benda á. Ekki lög.

    Dick move já.

    Af hverju hljómar restin eins og bna sè eitthver hetja að reyna að fá þessu breytt. Þetta var þekkt skipulagsvandamál og auka kostnaðarliður.

Leave a Reply