Já, könunum finnst þetta mjög sport, en hvað segja Íslendingar um þetta?

11 comments
  1. Þetta er virkilega skemmtilegt, það var bara í fyrradag þar sem hópur af krökkum voru að biðja bílana sem keyrðu framhjá að flauta. Fögnuðurinn hjá þeim þegar ég flautaði var óborganlegur

  2. ég finn mér alltaf einn eða eina og flauta nákvæmlega í takt við handapumpið þeirra. Einu sinni fattaði einn strákur að ég væri að gera það og trylltists af gleði.

  3. Þetta var alltaf jafn gaman þegar ég var að keyra vörubíla. Sérstaklega þegar maður var með loftlúður 😅

  4. Ég geri þetta alltaf, 30 ára, þegar ég mæti bíl frá Sigga Danska – hann er með svona ammríska trukka.

  5. Ef það er ekki í þéttu nágrenni er það allt fínt pg skemmtilegt en það verður vandamál þegar öll gatan er að vakna við stanslaust bílaflaut snemma á sunnudagsmorgni

  6. Að fá afsökun til að flauta út í loftið er altaf gaman. Sérstaklega ef maður er asnalegur eins og ég, með gamaldags aaaAAAAWWOOOOGa horn

  7. Er þetta ekki talsvert erfiðara á Íslandi þar sem hringvegurinn er einbreiður að lang stærstum hluta? Óviðeigandi að flauta mikið inni bæjum.

Leave a Reply