Ég er með ca 20 ára gamla eldhúsinnréttingu. Það eru flísar á gólfinu, sem fara upp í sökkulinn undir eldhúsinnréttingunni.

Ég var að ryksuga, rakst í eina flísina, og hún datt af. Mér brá svolítið við að sjá það að það voru nokkrir ormar eða lirfur aftan á flísinni, sem hafa greinilega gert sig heimakærar á milli flísarinnar og spónplötunnar í sökklinum.

[Mynd](https://i.imgur.com/0dRM2JO.jpeg)

Pöddurnar eru ca 5mm langar.

Hvað í ósköpunum er þetta? Er þetta eitthvað til að hafa áhyggjur af?

14 comments
  1. þetta er landdveljandi jafnfætla (Gráloddur)

    þetta er tegund úr Porcellio fjölskyldunni, en ekki veit ég hvaða tegund þetta er. líklega meinlaust

    brynjan hennar er enn að þroskast sem segir okkur að hún sé nýlega fædd

    edit þetta er hamgærulirfa op leysti þetta

  2. Mér sýnist þetta vera lirfa bjöllunar sem kallast “carpet beetle” á ensku. Veit ekki hvað þær heita á íslensku.

  3. Hef ekki hugmynd, en myndin minnir mig rosalega á pöddurnar sem voru heima hjá okkur og við náðum ekki að losna við þær fyrr en við fluttum. Hefurðu rekist á ham utan af svona pöddum, til dæmis ef þú kíkir undir innréttinguna? Undir ísskáp, bakvið skúffur og þannig. Þær lifðu af einn meindýraeyði og við höfðum mikið fyrir því að bera pöddurnar ekki á milli húsa þegar við fluttum. Áður en við fluttum þvoðum við allan þvott á háum hita og pökkuðum í plastpoka, ryksuguðum öll húsgögn og allar töskur í bak og fyrir. Höfum ekki séð þær síðan. Voru alveg meinlausar og héldu sig alfarið í skúmaskotum, en við þurftum að geyma mat í lokuðum döllum því þær voru mikið í neðstu skúffunum. Við sáum sjaldnast pöddurnar sjálfar, yfirleitt bara haminn utan af lirfunum.

  4. Best er að safna eintaki í krukku og frysta og fara svo með upp á einhverja nátturúfræðistofnun, t.d. í Kópavogi og spyrja þau um þetta, eru yfirleitt mjög hjálpsöm og fús að aðstoða með að greina svona.

  5. Varla hefurðu séð bjöllur endrum og eins, í gluggum t.d. sem eru svona eins og litlar kaffibaunir?
    Þetta lítur út ekki ósvipað hambjöllu/hamgæru. Sauðmeinlaus, fjölgar sér hægt (og því oft heima hjá fólki leeeengi án þess ða nokkur verði þeirra var) og auðvelt að losna við.
    Heyrðu í meindýraeyði. Ein yfirferð með spreyi, og málið (og poddurnar) dauðar 😛

Leave a Reply