Tala um hræðslu og þöggunartilburði meðal lækna

4 comments
  1. Þegar kemur að umræðunni um Covid þá þekki ég einungis eitt skýrt dæmi um þöggunartilburði. Það var þegar tveir læknar voru kærðir af Jóni Ívari til siðanenfdar Lí fyrir að tjá málefnalegar skoðanir. Væri gaman að heyra af öðrum dæmum.

    Hins vegar finnst mér of algengt að þegar menn eru gagnrýndir fyrir skoðanir sínar – með öðrum orðum málefnaleg gagnrýni – þá sé sú gagnrýni túlkuð sem þöggunartilburðir.

  2. #1 Jón Ívar er rugludallur og kærði aðra lækna fyrir að standa í rökræðum, það kallast þöggun. Maðurinn er búinn að starfa USA í langan tíma sem kvensjúkdómalæknir og hefur enga sérfræðimenntun tengda bóluefnum.

    Edit: Jón Ívar hótaði einnig að ætla gera allt sem í hans valdi stæði til að koma í veg fyrir að Jón Magnús (sá sem rökræddi) gæti komist til Bandaríkjanna í sérnám. MÖO skemma framtíð Jón Magnúsar.

    #2 Hjartalæknarnir gáfu góða punkta á sínum tíma þar sem bólgur í hjartavöðva (myocarditis) voru að koma fram í kjölfar bólusetninga, einkum hjá ungum karlmönnum. Hinsvegar er búið að sýna fram á að tíðni myocarditis er algegnari hjá þeim sem fá COVID19 heldur en þeim sem fá bólusetningu í þessum aldurshóp. Tíðni COVID19 sýktra ungra karlmanna er einstaklega lágt hérna á Íslandi en tíðni bólusetninga margfalt hærri og því upplifir hjartalæknirinn myocarditis sem algengan fylgikvilla hér á landi.

  3. Ekki mikið um þöggun ef þú ert að tjá þig í stærstu fjölmiðlum landsins, bæði í prenti og í fréttatímum.

Leave a Reply