Sæl öll sömul

Ég lenti í því ađ einhver tjónađi bílinn minn þegar ég var lagđur fyrir utan íbúđina mína í nótt. Ég tók eftir þessu þegar ég var á leiđinni inn í bílinn minn í morgun og var hvergi sjáanlegur bíll í hring um hann međ tjón á þessari hæđ. Ég var ađ láta gera viđ þessa hurđ fyrir 2 vikum síđan og þađ kostađi sitt 😥. Gerandinn hefur líklegast ekki haft tíma til þess ađ láta vita af þessu eđa einfaldlega bara flúiđ. Vitiđi hvađ ég get gert? Sjá tryggingarnar um þetta eđa er þetta alveg óafgreiđanlegt mál?

6 comments
  1. Skoðaðu rauða bíla á planinu hjá þér næstu daga. Þetta lítur út fyrir að vera rauðleitur jepplingur/jeppi.
    Þetta fellur undir trygginar en líklegast(nokkuð öruggt) metur þitt trygginafélag þetta nógu lágt til að falla undir sjálfsábyrgð.

  2. Eins og bent hefur verið á þá er um að gera að litast um eftir rauðum bílum í nágreninu og sjá hvort þeir séu rispaðir á stöðum sem gætu samsvarað þessari skemmd og í kjölfarið hringja á lögregluna eða Árekstur.is fá þau til þess að mæta og gera tjónaskýrslu með þér og eiganda rauða bílsins. Í framhaldinu af því ættu tryggingar Rauða bílsins að dekka þessa viðgerð að fullu.

    Ég er 98% viss um að svona tjón séu ekki bætt af þínu tryggingafélagi nema þú sért með bílinn í kaskó. Ef þú ert með bílinn í kaskó þá myndi ég heyra í tryggingarfélaginu og láta þau skoða þetta.

    Gangi þér vel með þetta.

Leave a Reply